Úr vél á vegg

Þriðjudaginn 3. mars mun Páll Guðjónsson heimsækja okkur með fyrirlestur sem hann kallar „ÚR VÉL Á VEGG“. Þar vísar Páll til þess ferðalags sem ljósmynd fer í frá því að hún er fönguð með myndavélinni, unnin til útprentunar, og allt þar til hún verður að listaverki upp á vegg.

Fundurinn er eingöngu ætlaður félagsmönnum og munu Fókusfélagar fá tölvupóst með stað og stund.

Ljósmynd í titli var tekin í ferð Fókusfélaga til Vestmannaeyja á síðasta ári. Höfundur Arngrímur Blöndahl.

Kvöldfundur með Chris

Nú á þriðjudaginn 18. febrúar kemur Christopher Lund ljósmyndari í heimsókn og kynnir fyrir okkur nýju bókina sína „Iceland – Contrasts In Nature“ og verður hann með eintök af bókinni meðferðis ef áhugasamir vilja kaupa, bókin kostar 5.000 kr. og verður eingöngu hægt að greiða með reiðufé eða millifærslu.

Við ætlum að breyta aðeins út af laginu í þetta sinn og hafa fundinn opinn fyrir almennum gestum svo nú er tækifæri til að bjóða áhugasömum vinum og vandamönnum að koma með og upplifa hefðbundinn Fókusfund.

Mæting er kl 20.00 í Kelduskóla Korpu, gengið inn á vinstri hlið hússins og er fundi lokið kl 22.00.

Fókusmynd mánaðarins

Nú er fyrstu keppninni lokið og tóku 17 manns þátt og 37 gáfu atkvæði. Þessi fyrsta keppni var jafnframt tilraunakeppni til þess að prófa kerfið og sjá hvað þarf að bæta. Næsta keppni verður styrkt af Canon á Íslandi og mun sigurvegari keppninnar hljóta Canon Selphy CP1300 ljósmyndaprentara í verðlaun að verðmæti 24.990. Keppnin er öllum opin, einnig þeim sem eru ekki félagar í Fókus. Eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á spjallið til að öðlast þátttökurétt.

Sigurvegarar janúarkeppninnar 2020:

1. sæti:
Gatklettur á Arnarstapa
eftir Guðjón Ottó Bjarnason
2. sæti:
Skál fyrir Fókus
eftir Arngrím Blöndahl
3. sæti:
Forystumaður
eftir Ragnhildi Finnbjörnsdóttur

Árgjald Fókus 2020

Þeir sem eiga ógreitt árgjald vegna 2020 vinsamlegast gangið frá greiðslu fyrir 7. febrúar. 

Árgjaldið er 7.500 kr. og leggst inn á reikning Fókus í Íslandsbanka.
Banki: 0537-26-016822
Kt.  680499-3149

Ekki er gerð krafa um að senda staðfestingu vegna greiðslu, en það væri gott ef þið millifærið ekki sjálf að senda staðfestingu svo við vitum fyrir hvern greiðslan er. Netfangið er gjaldkeri@fokusfelag.is

Athugið að þeir sem hafa ekki greitt árgjald fyrir 7. febrúar detta út úr félagaskrá, sem gerir það að verkum að þeir fá ekki póst frá félaginu og hafa ekki aðgang að heimasíðunni sem félagsmenn. Einungis félagsmenn hafa rétt til að taka þátt í viðburðum félagsins. 
 
Athugið að Fókus mun ekki gefa kvittun vegna greiðslu árgjalda.

Opinn kynningarfundur 21. janúar

Fókus – félag áhugaljósmyndara heldur opinn kynningarfund þriðjudaginn 21. janúar nk. og eru allir velkomnir.

Fundurinn verður haldinn í aðstöðu félagsins, Kelduskóla Korpu, Bakkastöðum 2, Grafarvogi. Fundurinn stendur frá 20.00 til 22.00

Fyrir hlé mun Arngrímur, formaður, kynna félagið og starfsemina. Að því loknu mun Kristján U. Kristjánsson hafa kynningu/sýnikennslu á vinnslu nokkurra mynda í myndvinnsluforritinu Adobe Lightroom.
Þeir sem vilja kynna sér starfið eru velkomnir og hvattir til að mæta og eiga kvöldstund í hóp áhugasamra ljósmyndara.

Fyrsta Fókusferð ársins 2020

Við Fókusfélagar áttum ljómandi góða ljósmyndaferð í dag þrátt fyrir afleita veðurspá. En það fiskaðist þokkalega í þessari ferð þrátt fyrir allt sem sýnir manni bara að taka aldrei neinu sem gefnu. Það má sjá mun fleiri myndir úr ferðinni inni á nýja spjallinu okkar og viljum við hvetja alla til að skrá sig hvort sem þeir ætla sér að ganga í félagið eða ekki. Spjallið er öllum opið og allir sannarlega velkomnir.

Gleðilega hátíð

Jólafundi lauk þriðjudaginn 17. desember með glæsibrag þar sem 45 viðstaddir höfðu flestir tekið á móti bæði nýrri Árbók Fókus sem og glæsilegri Patagonia útivistarúlpu frá Fjallakofanum sem Fókusfélögum bauðst að fá á frábæru verði fyrir tilstilli styrktaraðila, og þökkum við Árbókarnefnd og Hirti Stefánssyni sem gerði úlpuna að veruleika, kærlega fyrir. Á jólafundinum var einnig ný heimasíða kynnt og nýtt spjall opnað formlega, en rífandi gangur hefur verið á spjallinu frá opnun og mælum við að þeir skrái sig sem eiga það eftir og taki þátt í umræðum um ljósmyndir og ljósmyndun. Að lokum viljum við þakka undirbúningsnefndinni sem stóð að jólafundinum og fyrir allar þær kræsingar sem voru í boði. Meðlimir geta séð ítarlegri fundargerð hér, en til þess að geta lesið fundargerðina þarf viðkomandi að vera skráður Fókusfélagi á spjallinu.

Stjórn Fókus óskar félagsmönnum gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir samveru á liðnu ári. Við vonum að allir njóti hátíðarinnar og eigi góðar samverustundir með fjölskyldu, vinum og jafnvel myndavélum.

Ekki gleyma að kíkja á spjallið.

Árbók Fókus 2019

Nú er Árbók Fókus 2019 loksins að komast í hendur meðlima félagsins á árlegum jólafundi félagsins. Þessi bók markar 20 ára afmæli félagsins og hafa aldrei eins margir meðlimir tekið þátt, eða 45 talsins. Bókin þykir einkar glæsileg að þessu sinni og breytt var út af ýmsum venjum, til dæmis fær nú hver ljósmyndari heila opnu fyrir myndirnar sínar. Við hlökkum til útgáfu 2020 bókarinnar og vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn Fókus þakkar kærlega fyrir samstarfið á liðnu ári.

Gleðilega hátíð.