Um Fókus

Við vonum að þú finnir í Fókus farveg fyrir áhuga þinn á ljósmyndun og njótir þess um leið að kynnast félögunum, ljósmyndurum sem eru að sinna áhugamáli sínu af ástríðu. Starfið hjá okkur er fjölbreytt allt árið um kring nema um hásumarið, þá erum við með takmarkað eða jafnvel ekkert starf á vegum félagsins.

Helstu þættir í starfseminni eru fræðslufundir, námskeið, ljósmyndarölt, lengri og styttri ljósmyndaferðir, ljósmyndasýningar, sýning eigin mynda á fundum, útgáfa árbókar og fleira mætti telja.

Félagar eru duglegir að miðla fróðleik sín á milli, hvort sem er á vef félagsins eða í spjalli þegar við hittumst á viðburðum félagsins.

Stjórn Fókus 2023-2024
Daðey Arnborg Sigþórsdóttir formaður
Guðjón Ottó Bjarnason varaformaður
Þorkell Sigvaldason ritari
Kristján U. Kristjánsson gjaldkeri
Ósk Ebenesersdóttir meðstjórnandi
Svanur Sigurbjörnsson meðstjórnandi
Tryggvi Már Gunnarsson meðstjórnandi

Vefstjóri
Kristján U. Kristjánsson

Fókus – félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999.

Netföng Fókus:
fokusfelag (hjá) fokusfelag.is – almennar fyrirspurnir & vefstjórn
stjorn (hjá) fokusfelag.is – erindum beint að stjórn félagsins
gjaldkeri (hjá) fokusfelag.is – beint samband við gjaldkera
myndir (hjá) fokusfelag.is – fyrir myndasýningar á fundum
keppni (hjá) fokusfelag.is – innsendingar í ljósmyndakeppnir, sjá spjallið
syning (hjá) fokusfelag.is – sýningarnefnd
ferdir (hjá) fokusfelag.is – ferðanefnd