Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA:HAUST 2021
Þemað má einnig innihalda helstu viðburði haustsins, til dæmis Hrekkjavöku, Októberfest, Friðarsúluna, fyrstu norðurljós o.s.frv.
Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í boði Origo:
- 1. sæti : Canon PowerShot Zoom myndavél að verðmæti 49.900 kr.
- 2. sæti : Sirui Traveler 5C koltrefja ferðaþrífótur að verðmæti 19.900 kr.
- 3. sæti : Canon BP100 myndavéla bakpoki að verðmæti 12.990 kr.
Helstu atriði:
- Myndin þarf að hafa verið tekin á tímabilinu 1. október - 11. nóvember 2021.
- Hægt verður að senda inn mynd í keppnina til miðnættis fimmtudagsins 11. nóvember 2021
- Kosning hefst föstudag 12. nóvember
- Kosningu lýkur kl 21.00 þriðjudaginn 16. nóvember og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Sigurvegarar keppninnar verða tilkynntir á miðjum kvöldfundi Fókus sem er á dagskrá 16. nóvember, og verðlaun afhent til þeirra sigurvegara sem verða viðstaddir.
- Þessi tiltekna keppni er einungis opin félagsmönnum Fókus. Ekki félagi? Skráðu þig hér.
Innsending mynda:
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né opinberlega annarsstaðar, t.d. Facebook & Instagram.
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Gangi ykkur vel!