Nýverið lýstu góðir félagar eftir fleiri myndum af fólki og því tilvalið að taka það efni sem vikuáskorun. Allar myndir af fólki - candid - street - portrait eru viðfangsefni vikunnar. Hér kemur ítarefni fyrir þá sem vilja fá góð ráð: https://expertphotography.com/candid-photography-tips/
Myndin hér að neðan var tekin í þoku við Jökulsárlón sama dag og óskin eftir fleiri mannamyndum var birt á FB ......
Vikuáskorun 29.júlí - 4.ágúst: Fólk
-
- Póstar: 89
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
- Hafðu samband:
Hér er ein sjálfsmynd frá mér.
-
- DSC09720-Edit_Blur.jpg (207.4 KiB) Skoðað 20552 sinnum
Kv. Ragnhildur
https://www.facebook.com/ragnhildurfinn
https://www.facebook.com/ragnhildurfinn
- Daðey
- Stjórnarmaður
- Póstar: 146
- Skráði sig: Sun Des 29, 2019 8:03 pm
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
Fannst vera laugardagur og var því sultuslök að hlusta á Brekkusöng og taka upp úr kössum þegar ég fattaði að auðvitað væri sunnudagur og ég hefði 4 klst til stefnu til að taka mynd fyrir 52Frames vikuáskorunina.
Greip barnið og myndavélina og hljóp út í miðnættið með það í huga að reyna að nýta götulýsinguna í portrait myndatöku. Þemað var vítt ljósop, og extra credit að hafa það f1.4 portrait. Þar sem götulýsingin hér í kring er frekar gul skipaði ég dömunni að fara í gula vindjakkann og finnst það tóna vel í þessari birtu sem við vorum að vinna með.
Þessa tók ég á leikvelli hér rétt við húsið okkar. Fannst einhvern stemmning í því hvernig þversláin af rólunum skyggir yfir búkinn, en höfuð og hendur þar sem hún heldur í rólukeðjurnar hafa milda lýsingu. Eftir á að hyggja hefði ég átt að hafa minna negative space fyrir ofan höfuðið og leyfa höndunum að koma heilum inn á rammann, en samt finnst mér einhver sjarmör yfir þessari mynd svona akkúrat eins og hún er.
Hér fórum við svo nær götunni og fengum skemmtileg Bokeh af umferðarljósunum.
Líklega er þessi seinni "tæknilega réttari" en það er einhver dulúð yfir hinni sem gerði það að verkum að ég valdi hana til að skila inn þessa vikuna.
Ég þigg alveg gagnrýni og vangaveltur
Veit ekki afhverju þær birtast samt á hlið hér :/

- Anna_Soffia
- Fókusfélagi
- Póstar: 115
- Skráði sig: Mið Jan 01, 2020 4:13 pm
Það er mannfólk á myndinni - en ég kemst kannski ekki langt frá landslaginu
- Anna_Soffia
- Fókusfélagi
- Póstar: 115
- Skráði sig: Mið Jan 01, 2020 4:13 pm
Daðey skrifaði: ↑Mán Ágú 02, 2021 1:54 amFannst vera laugardagur og var því sultuslök að hlusta á Brekkusöng og taka upp úr kössum þegar ég fattaði að auðvitað væri sunnudagur og ég hefði 4 klst til stefnu til að taka mynd fyrir 52Frames vikuáskorunina.
Greip barnið og myndavélina og hljóp út í miðnættið með það í huga að reyna að nýta götulýsinguna í portrait myndatöku. Þemað var vítt ljósop, og extra credit að hafa það f1.4 portrait. Þar sem götulýsingin hér í kring er frekar gul skipaði ég dömunni að fara í gula vindjakkann og finnst það tóna vel í þessari birtu sem við vorum að vinna með.
Þessa tók ég á leikvelli hér rétt við húsið okkar. Fannst einhvern stemmning í því hvernig þversláin af rólunum skyggir yfir búkinn, en höfuð og hendur þar sem hún heldur í rólukeðjurnar hafa milda lýsingu. Eftir á að hyggja hefði ég átt að hafa minna negative space fyrir ofan höfuðið og leyfa höndunum að koma heilum inn á rammann, en samt finnst mér einhver sjarmör yfir þessari mynd svona akkúrat eins og hún er.
20210802003000_0W6A5223.JPG
Hér fórum við svo nær götunni og fengum skemmtileg Bokeh af umferðarljósunum.
20210802002240_0W6A5187.JPG
Líklega er þessi seinni "tæknilega réttari" en það er einhver dulúð yfir hinni sem gerði það að verkum að ég valdi hana til að skila inn þessa vikuna.
Ég þigg alveg gagnrýni og vangavelturVeit ekki afhverju þær birtast samt á hlið hér :/
[/quote
Mér finnst báðar fallegar
-
- Póstar: 89
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
- Hafðu samband:
Takk Daðey fyrir jákvætt feedback. Þetta hvetur mann áfram. Það er líka gaman að fylgjast með þinni vegferð. Þú ert mjög hugmyndarík og dugleg að taka myndir.
Þínar myndir eru mjög skemmtilegar móment myndir. Maður sér vel að dóttir þinni líður vel fyrir framan vélina hjá þér. Fyrri myndin er mjög skemmtileg finnst mér einmitt þar sem þú nefnir að eitthvað er í forgrunni, ekki í fókus. Gefur myndinni dýpt.
Fyrst fannst mér sérstakt að hafa svona gula birtu en eftir að hafa lesið textann með myndunum, þá fannst mér hún vel eiga við. Varðandi hina myndina sem er kannski tæknilega "réttari". Fyrir mér eru reglur settar til að brjóta þær

Falleg er hún dóttir þín.
Kv. Ragnhildur
https://www.facebook.com/ragnhildurfinn
https://www.facebook.com/ragnhildurfinn