Manneskjur í aðalhlutverki. Mannlíf, götuljósmyndun, stúdíómyndir, brúðkaupsmyndir, barnamyndir og íþróttir.
-
Ragnhildur
- Póstar: 89
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
-
Hafðu samband:
-
Sara Ella
- Fókusfélagi

- Póstar: 87
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 10:15 pm
Sun Okt 18, 2020 9:43 pm
Skemmtilegar myndir, en er ég svona gamaldags að finnast myndir sem eru ekki í fókus ekki nógu góðar? Aðrar finnst mér mjög góðar og skemmtileg vinnsla á myndunum, takk Ragnhildur að sýna okkur hvað er að gerast annarsstaðar en á Íslandi þessa dagana
-
Ragnhildur
- Póstar: 89
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
-
Hafðu samband:
Mán Okt 19, 2020 4:37 pm
Sara Ella skrifaði: ↑Sun Okt 18, 2020 9:43 pm
Skemmtilegar myndir, en er ég svona gamaldags að finnast myndir sem eru ekki í fókus ekki nógu góðar?
Takk Sara. Gaman að fá athugasemd frá þér og vangaveltur um fókus í ljósmyndum. Þetta er góð spurning. Fyrir mér, þá vegur tilfinning fyrir myndinni þyngra en fókus. Þegar ég horfi t.d. á þessar tvær myndir sem ég póstaði og eru ekki í fókus, þá vekja þær upp tilfinningar um ást og kærleik. Hreyfingin bætir mögulega við hverfulleika. Augnablikið sem er liðið.
Einnig má velta fyrir sér hvort slíkar myndir falli frekar undir abstract hlið ljósmyndunar - nú eða eru bara lélegar
Það væri gaman að heyra hvað fleirum finnst

-
Þorkell
- Stjórnarmaður

- Póstar: 98
- Skráði sig: Fös Nóv 29, 2019 7:53 am
- Staðsetning: Reykjavík
-
Hafðu samband:
Mán Okt 19, 2020 8:10 pm
Ragnhildur skrifaði: ↑Mán Okt 19, 2020 4:37 pm
Einnig má velta fyrir sér hvort slíkar myndir falli frekar undir abstract hlið ljósmyndunar - nú eða eru bara lélegar
Það væri gaman að heyra hvað fleirum finnst
Veistu, ég hef verið að spá í þessu. Þetta er svolítið vandmeðfarið og vandamálið með myndir sem eru úr fókus er hvort það var viljandi gert eða ekki. Hérna fæ ég á tilfinninguna að mikið sé að gerast þarna.
-
Sara Ella
- Fókusfélagi

- Póstar: 87
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 10:15 pm
Þri Okt 20, 2020 5:33 pm
Það er endalaust hægt að spá og spekúlega, það er einmitt það sem hverjum og einum finnst um sína mynd sem er svo skemmtilegt, ekki láta einhvern sem er ekki á sömu skoðun skemma fyrir manni, við sjáum myndefnið í mismunandi ljósi og auðvitað er það tilfinningin ekki síður en hvernig myndin ,,á að vera". Flott hjá þér Ragnhildur og gaman að fá svar frá þér, kveðja yfir götuna