Þessi grind af vefnum og spjallinu sem er uppi í dag - er ekki negld í stein heldur var þessu öllu hent upp af eigin geðþótta vefstjórans til þess eins að gera eitthvað.
Endilega sendið mér hugmyndir um betra skipulag, við getum endurskýrt, endurraðað, fjölgað og fækkað grúbbum eins og okkur sýnist.
Notum þennan tiltekna þráð til að koma ábendingum til vefstjóra með því að ýta á "Svara" hér fyrir neðan
Sendið vefstjóra uppástungur um breytingar
Takk fyrir þessa skemmtilegu síðu! Er viss um að hún mun verða einn liðurinn í að styrkja starfið í félaginu til lengri tíma litið.
En mig langaði að kanna hvort það er nokkur kostur að fá árbókina á rafrænu formi inn á vefsíðuna?
En mig langaði að kanna hvort það er nokkur kostur að fá árbókina á rafrænu formi inn á vefsíðuna?
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Það væri gaman að fá inn þráð þar sem er beinlínis verið að biðja um gagnrýni á þeim myndum sem maður setur inn. Eftir 1000x "flottar myndir" er maður litlu nær um hvernig maður getur bætt sig. Ég væri til í að heyra frekar að ég hefði átt að hafa viðfangsefnið hærra í rammanum og leyfa hvítum að brenna út
Sem sagt, ekki þráður fyrir þá sem ekki vilja beinlínis að myndirnar séu teknar fyrir með öllu sem því fylgir
Sem sagt, ekki þráður fyrir þá sem ekki vilja beinlínis að myndirnar séu teknar fyrir með öllu sem því fylgir
Frábært framtak og virkilega flott.
Ég er með smá pælingar. Er hugsunin að búa til nýjan þráð um leið og ný mynd er sett inn. Það verða þá ansi margir þræðir fljótlega. Það sem ég er aðeins að spá í er að það eru svakalega mikið af músarklikkum að skoða myndirnar í stað þess að geta skrollað niður séð myndirnar strax. Fyrir mér er það unun að geta flett í gegnum safn mynda og stoppað við og skoðað mynd sem grípur augað. Hjá mér eru sumar myndir lengi að hlaðast inn og í símanum er þetta enn lengur. Draumurinn væri auðvitað að sjá myndirnar fyrr (þurfa ekki að klikka sig inn og ýta síðan á bakk takka til að fara til baka)
Kv.Þórður.

- kiddi
- Kerfisstjóri
- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
Það er svosem engin regla á því hvernig við viljum hafa þetta, en víða hefur tíðkast á erlendum spjallborðum sem og ljósmyndakeppni.is á sínum tíma að vera með svokallaða þemaþræði. Þannig að ef t.d. þú hefðir mikinn áhuga á flugvélum og langaði að sjá fleiri myndir af flugvélum, þá gætirðu stofnað þráð sem heitir [ÞEMA] Flugvélar og byrjað þráðinn með nokkrum af þínum eigin myndum og svo boðið fleirum að senda inn. Ég fatta reyndar núna að það er eiginlega enginn grúbba sem Flugvélaþemað passar innan í svo við verðum að leggja höfuð í bleyti og búa til nýjan flokk sem getur haldið utan um þá hluti sem er ekki búið að gera flokka fyrir
Annars ertu í raun að segja að þú ert hrifnari af því hvernig Facebook virkar, og ég er hræddur um að við getum í raun aldrei náð þeirri stemningu alveg hér enda er þetta kerfi með strúktúr en er ekki "fljótandi á" eins og ég lýsti Facebook, enda var tilgangurinn að flýja það kerfi því upplýsingar áttu það til að týnast og hverfa í myndaflóðinu.
Annars ertu í raun að segja að þú ert hrifnari af því hvernig Facebook virkar, og ég er hræddur um að við getum í raun aldrei náð þeirri stemningu alveg hér enda er þetta kerfi með strúktúr en er ekki "fljótandi á" eins og ég lýsti Facebook, enda var tilgangurinn að flýja það kerfi því upplýsingar áttu það til að týnast og hverfa í myndaflóðinu.
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Er hægt að setja inn einhvers konar push notification í þetta kerfi svo maður viti hvenær nýjir póstar koma inn?