Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
Helstu atriði:
- Ljósmynd skal vera tekin í febrúar árið 2020.
- Keppnistímabili lýkur á miðnætti laugardaginn 29. febrúar.
- Hægt verður að senda inn myndir í Febrúarkeppnina til 7. mars
- Kosning hefst sunnudaginn 8. mars.
- Kosningu lýkur kl 18.00 sunnudaginn 15. mars og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Afhending verðlauna fer fram á Fókusfundi þriðjudaginn 17. mars kl 20.00. Sigurvegari er velkominn á fundinn þó hann sé ekki félagsmaður.
- Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
- Sigurvegari keppninnar hlýtur Canon SELPHY CP1300 10x15cm ljósmyndaprentara í verðlaun, í boði Origo / Canon á Íslandi. Að auki fær sigurvegari keppninnar fær heiðurinn að því að eiga Fókusmynd Mánaðarins sem verður birt á forsíðu vefsins okkar ásamt því að sigurmyndin verður í bakgrunni hér á spjallinu fram að næstu keppni.
- Í tilefni þess að verðlaun eru í boði í Febrúarkeppninni munu stjórnendur Fókus og keppnisstjóri EKKI taka þátt í keppninni, til þess að taka af allan vafa um framkvæmd keppninnar.
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né á Facebooksíðu Fókus
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd, myndir án titla verða ekki með í keppninni.
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Gangi ykkur vel!