Hæ
Ég þarf að taka umhverfisportrett mynd sem hluti af verkefni. Myndin þarf að sýna manneskju í umhverfi eða við einhverja iðju sem lýsir hennar innri manni. Ég myndi gjarnan vilja taka mynd af t.d. einhverjum/einhverri sem vinnur / hefur áhuga á einhverju skapandi. Til dæmis Listmálarar, tónlistarfólk, leikarar, dansarar o.s.frv. eða af manneskju sem vinnur við eða hefur ánægju af einhverju sem tengist mat, t.d. eldamennsku, ræktun o.s.frv.
Aðrar tillögur vel þegnar, þetta var svona það sem kom fyrst upp í hugann.
Einhver hér sem hefur áhuga eða þekkir einhvern / einhverja sem væri kannski til í eitthvað svona?
umhverfisportrett - módel óskast
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Það gæti vel gengið
Eina sem gæti verið smá vandamál er að ég er með hrikalegt ofnæmi fyrir þeim svo þetta yrði að heppnast hratt og vel Gæti sennilega ekki verið meira en 5 mínútur nálægt hestunum sjálfum Myndi dæla í mig ofnæmislyfjum fyrst en vera með backup mótíf í huga. Þæð gæti t.d. verið mynd af henni með hjálminn í höndinni og hnakkinn á girðingu eða eitthvað slíkt.
Ég ætla að leita að hugmyndum
Takk
P.s. Það má endilega koma með fleiri hugmyndir, það þarf ekki að hætta þó komin sé ein góð.
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm