Kista er lítil gjá í fjöruborðinu í Trékyllisvík. Þar voru framdar síðustu galdrabrennur á Íslandi árið 1654. Þorleifur Kortsson sýslumaður Strandasýslu knúði fram játningu þriggja bænda á því að hafa með kukli orðið þess valdandi að íbúar hreppsins upplifðu ýmis einkenni, sem allt eins kunna að hafa verið vegna næringarskorts. Á þeim tíma voru mikil harðindi og því fátækt og örbyrgð í hreppnum. Þorleifi Guðbrandssyni, Agli Bjarnasyni og síðar Grími Jónssyni var komið fyrir í gjánni og þeir síðan brenndir til dauða.
Það er ómögulegt að ímynda sér hversu þjáningafull þau endalok hafa verið. Síðan er talið að reimt sé á svæðinu.
Gjáin er rúmlega 2 metrar á dýpt, þröng og hlutfallslega löng. Sjór flæðir inn í hana á háflæði. Mig langaði til þess að reyna að gera óhugnaðinum skil í mynd og fór því þangað nokkrum sinnum til þess að finna bestu birtuna, í síðasta skipti að kvöldlagi í þoku.
Það var hljótt eins og gjarnan er í þoku. Heyrðist í stöku fugli og í sjónum við mynni gjárinnar. Svo skyndilega heyrði ég hljóð sem ég hafði ekki heyrt áður þarna og varð hverft við en áttaði mig svo á því að þetta var gagg í tófum, sem er mikið af þarna við ströndina.
Myndin er tekin í botningum á gjánni í átt að sjónum.
[ÞEMA] Svart-hvítt landslag
- Anna_Soffia
- Fókusfélagi
- Póstar: 115
- Skráði sig: Mið Jan 01, 2020 4:13 pm
Mér finnst þér hafi tekist að ná drunganum og dulúðinni. Ég hef bara komið þarna í sólskini, en fannst samt skugginn í gjánni myrkur og.hefði ekki gengið inn í hannElin Laxdal skrifaði: ↑Sun Ágú 15, 2021 11:27 amKista er lítil gjá í fjöruborðinu í Trékyllisvík. Þar voru framdar síðustu galdrabrennur á Íslandi árið 1654. Þorleifur Kortsson sýslumaður Strandasýslu knúði fram játningu þriggja bænda á því að hafa með kukli orðið þess valdandi að íbúar hreppsins upplifðu ýmis einkenni, sem allt eins kunna að hafa verið vegna næringarskorts. Á þeim tíma voru mikil harðindi og því fátækt og örbyrgð í hreppnum. Þorleifi Guðbrandssyni, Agli Bjarnasyni og síðar Grími Jónssyni var komið fyrir í gjánni og þeir síðan brenndir til dauða.
Það er ómögulegt að ímynda sér hversu þjáningafull þau endalok hafa verið. Síðan er talið að reimt sé á svæðinu.
Gjáin er rúmlega 2 metrar á dýpt, þröng og hlutfallslega löng. Sjór flæðir inn í hana á háflæði. Mig langaði til þess að reyna að gera óhugnaðinum skil í mynd og fór því þangað nokkrum sinnum til þess að finna bestu birtuna, í síðasta skipti að kvöldlagi í þoku.
Það var hljótt eins og gjarnan er í þoku. Heyrðist í stöku fugli og í sjónum við mynni gjárinnar. Svo skyndilega heyrði ég hljóð sem ég hafði ekki heyrt áður þarna og varð hverft við en áttaði mig svo á því að þetta var gagg í tófum, sem er mikið af þarna við ströndina.
Myndin er tekin í botningum á gjánni í átt að sjónum.
_00A6380-1-3.jpg
-
- Stjórnarmaður
- Póstar: 69
- Skráði sig: Þri Jan 28, 2020 10:19 pm
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
Langar aðeins að bæta í þennan skemmtilegar þráð. Hér er s/h útgáfa af einni myndanna sem ég tók í kvöld við Hvaleyri.