Hæ
Ég mun einhvern tíma á næstunni fara í portrait myndatökur fyrir námið mitt og datt í hug að kanna hvort einhverjir hér hafa áhuga á að vera með sem módel og auðvitað taka myndir líka. Ég sé fyrir mér að þetta hefjist svona um 15 - 20.jan. Ég er með stúdíóaðstöðu, ljós, octabox, softbox, reflectora, standa, bómu og ýmislegt fleira. Er að vísu bara með hvítan bakgrunn, væri gaman að vera með dökkan líka ef einhver á stórt svart lak eða eitthvað slíkt
Mögulega fer ég í umhverfisportrait myndatöku líka.
Athugið að þetta verður svona trial by error dæmi þar sem hlutir munu taka langan tíma og margar útgáfur af öllu mögulega verða prufaðar þannig að þetta er ekki eitthvað sem tekur 20 mín Ég ætla að læra af mistökunum og ná hlutunum rétt og bæta kunnáttuna til að geta verið öruggur í stúdíói og geta sett upp myndatöku án þess að þurfa að prufa mig áfram lengi í hvert skipti. Ég er með fræðin 100% en þarf meiri verklega kunnáttu.
Hvernig hljómar þetta?
Módel og áhugasamir um portrait óskast
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Einn kominn.... eru fleiri sem hafa áhuga?
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
3 komnir
Gott væri að fá konu líka
Gott væri að fá konu líka
Flott framtak. Væri gaman að fylgjast með
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Takk fyrir þetta Þóra
Ég er ekki alveg viss um dagsetninguna þar sem ég verð að vinna þetta í samráði við húsráðanda. Ég læt vita þegar nær dregur.