Laga gamlar myndir

Manneskjur í aðalhlutverki. Mannlíf, götuljósmyndun, stúdíómyndir, brúðkaupsmyndir, barnamyndir og íþróttir.
Svara
Ragnhildur
Póstar: 89
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
Hafðu samband:

Þri Nóv 17, 2020 8:58 pm

Sæl veriði,

Er einhver hér að fást við það að laga gamlar myndir? Ég var beðin um að laga þessa mynd af ömmu minni fyrir jarðaför hennar nú í vikunni. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég geri eitthvað svona en á þessari mynd fannst mér erfiðast að taka þennan ramma á augunum út þannig að engin ummerki sáust og svo þrífa skyrtuna og halda samt mynstrinu. Ég skannaði hana inn í tveimur hlutum og skeitti henni svo saman, en hún var í A3 stærð. Allt gert í PS.
Það var svona ljúf-sárt að fá þetta tækifæri en þessi mynd var ein af fáum sem henni líkaði við af sjálfri sér.

Hvað finnst ykkur? Mögulega gæti ég lagað "grain" eitthvað, en ég var ekki viss hvernig það væri gert í PS. Er einhver með ábendingar varðandi það?
Amma_Edited_minni.jpg
Amma_Edited_minni.jpg (159.47 KiB) Skoðað 8411 sinnum
Amma_UnEdited_minni.jpg
Amma_UnEdited_minni.jpg (143.14 KiB) Skoðað 8411 sinnum
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Þri Nóv 17, 2020 10:51 pm

Mjög vel gert hjá þér :) Fyrsta sem ég myndi gera væri sennilega að laga contrastinn aðeins, sjá skjáskot í viðhengi. Varðandi að minnka noise, þá er ekki hlaupið að því þar sem kornin eru svo stór að hefðbundin tól virka illa. Ein aðferð væri að taka "skin smoothing" tæknina sem þú notar til að fegra húð, þá myndi maður búa til auka afrit af grunnmyndinni, hreinsa hana, búa to svo til maska og teikna inn slétt svæði eins og kinnar og enni, en skilja flóknu svæðin (augu, munnur, nef og hár) eftir svo smáatriðin týnist ekki.
amma.jpg
amma.jpg (219.75 KiB) Skoðað 8407 sinnum
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Þri Nóv 17, 2020 10:56 pm

Varðandi de-noise þá er til plug-in fyrir Photoshop sem á að virka töluvert betur en allt annað sem er innbyggt, Topaz DeNoise AI, hefurðu skoðað það?

https://topazlabs.com/denoise-ai-2/

Hægt að sækja ókeypis prufuútgáfu :) Ég nördaði mig aðeins í gang og sótti free trial sem virðist virka hömlulaust og án watermark í 30 daga. Prófaði bæði DeNoise og líka Gigapixel til að fá einhver myndgæði til baka. Mér sýnist eftir þessa meðferð að fókusinn í upprunalegu myndinni hafi verið ögn fyrir aftan andlitið á henni eða í sjálfu hárinu.
Amma_Edited_minni-DeNoiseAI-denoise-gigapixel.jpg
Ragnhildur
Póstar: 89
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
Hafðu samband:

Mið Nóv 18, 2020 12:04 am

Vá hvað hún er fín hjá þér Kiddi! Tók ekki lengri tíma en þetta 👍 Takk fyrir þessa ábendingu með forritið og contrast með levels. Hef aldrei kunnað á levels almennilega en það er greinilegt að ég þarf að læra betur á það 🙂

Gaman að sjá hana svona fína 💕
Svara