Sæl öll
Þriðjudaginn 14.september ætla ég að vera í miðbænum að rifja upp gamla takta í götu-og mannlífsljósmyndun. Allir sem hafa áhuga á að vera með eru hjartanlega velkomnir. Sérstaklega vil ég bjóða velkomna alla nýliða í félaginu því það er alveg kominn tími á sjá ný andlit með eða án grímu
Þið getið sent mér skilaboð hér, á FB eða bara hringt í 863-4452 ef þið viljið slást með í för.
Göturölt
-
- Póstar: 155
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm
Klassískt að hittast í andyri Hörpunnar kl 20 og labba þaðan. Getur verið að ég byrji í bílageysmlunni sjálfri kl 19 samt. Það er ein mynd sem mig langar að ná þar
- kiddi
- Kerfisstjóri
- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
Hér kemur smá myndasería frá kvöldröltinu, takk kærlega fyrir mig Þetta var ofboðslega skemmtilegt kvöld og enduðum við á kaffihúsi þar sem myndavélin mín gekk á milli manna og því á ég engar af myndunum sem voru teknar yfir kaffibolla. Það var alveg bíó að sjá hana Rögnu (Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir) koma út úr skápnum þetta kvöld sem alvöru götulífsljósmyndari, en hún var ófeimin að stökkva á alla áhugaverða karaktera sem urðu fyrir vegi hennar, á meðan við hin skræfurnar horfðum á með öfund yfir þessum kjarki. Ég hlakka til að sjá myndirnar frá henni
Myndir teknar á Canon EOS R5 með RF 28-70/2L
Myndir teknar á Canon EOS R5 með RF 28-70/2L