Hæ öll sömul.
Mig vantar smá aðstoð. Ég var beðinn um að taka myndaseriu / umhverfisportrett af módeli í nokkrum mismunandi "outfittum" og allt gott og blessað við það. Ég var hins vegar beðinn um að velja staði á Reykjanesinu sem henta í þetta. Hraun og mosi er upplagið en þó er allt í boði. Er einhver hér sem hefur reynslu af módelmyndatöku á þessu svæði og getur bent mér á heppilega tökustaði?
Takk takk