Hæhæ
Ég var í fyrsta sinn að leika mér með studioljós sem ég keypti mér. Var búin að skoða youtube af myndböndum um efnið, en flest sem ég fann tengdust því að setja ljósin saman og þessháttar.
Nú lendi ég í því að það er leiðindar skuggi á myndunum - hvernig sný ég mér í því? Ég prufaði að stilla styrkleikann á ljósnumum hingað og þangað og allskonar en komst ekki fram hjá þessum vanda...
Væri til í einhver ráð - hvort sem það er í formi svars eða ábendingar um efni á youtube sem hjálpar manni við að staðsetja ljósin rétt og stilla þau...
Fyrirfram þakkir
Skuggi - stúdíóljós
-
- Fókusfélagi
- Póstar: 234
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 9:15 pm
Hér er smá fræðsla um studio lýsingu.
https://www.lightstalking.com/use-conti ... rtraiture/
Það er óendanlega mikið af góðu fræðsluefni á þessari síðu þe lightstalking
https://www.lightstalking.com/use-conti ... rtraiture/
Það er óendanlega mikið af góðu fræðsluefni á þessari síðu þe lightstalking
-
- Stjórnarmaður
- Póstar: 69
- Skráði sig: Þri Jan 28, 2020 10:19 pm
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
Hvar er skugginn er eiginlega lykilspurning.
Staðsetningin á ljósunum ræður öllu um það hvar skugginn fellur. Stærðin á modifier (regnhlíf, softbox eða slíkt) getur síðan haft áhrif á það hversu harður skugginn verður. Ertu til í að setja inn dæmi og lýsingu á því hvernig þú stilltir þessu upp og þá get ég kannski aðstoðað
Kv. Tryggvi Már
Staðsetningin á ljósunum ræður öllu um það hvar skugginn fellur. Stærðin á modifier (regnhlíf, softbox eða slíkt) getur síðan haft áhrif á það hversu harður skugginn verður. Ertu til í að setja inn dæmi og lýsingu á því hvernig þú stilltir þessu upp og þá get ég kannski aðstoðað
Kv. Tryggvi Már
-
- Stjórnarmaður
- Póstar: 69
- Skráði sig: Þri Jan 28, 2020 10:19 pm
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
Varstu búin að sjá þetta myndband, Daðey?
Kveðja
Tryggvi Már
Kveðja
Tryggvi Már
- Daðey
- Stjórnarmaður
- Póstar: 146
- Skráði sig: Sun Des 29, 2019 8:03 pm
- Staðsetning: Kópavogur
- Hafðu samband:
Takk fyrir þetta Tryggvi, ég kíki á þetta í kvöld og set þá inn óunna mynd og mynd af uppsetningunnitryggvimar skrifaði: ↑Mán Des 07, 2020 8:17 pmHvar er skugginn er eiginlega lykilspurning.
Staðsetningin á ljósunum ræður öllu um það hvar skugginn fellur. Stærðin á modifier (regnhlíf, softbox eða slíkt) getur síðan haft áhrif á það hversu harður skugginn verður. Ertu til í að setja inn dæmi og lýsingu á því hvernig þú stilltir þessu upp og þá get ég kannski aðstoðað
Kv. Tryggvi Már
- kiddi
- Kerfisstjóri
- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
Því minni sem stúdíóaðstaðan er því erfiðara er að stjórna ljósi og skugga. Ef viðfangsefnið er nálægt bakgrunninum þá er skuggi óhjákvæmilegur nema þú lýsir sérstaklega á skuggann eins og fram hefur komið.