[KEPPNI] Jólin 2020 - Fyrir félagsmenn eingöngu
Sent: Fim Des 10, 2020 2:13 pm
Canon SELPHY SQUARE QX 10 ljósmyndaprentara í boði Origo / Canon á Íslandi að verðmæti 28.900 kr
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - JÓLAKEPPNI 1. desember - 3. janúar 2021
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA:JÓLIN 2020
Helstu atriði:
Sigurvegari keppninnar hlýtur í verðlaun LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - JÓLAKEPPNI 1. desember - 3. janúar 2021
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA:JÓLIN 2020
Helstu atriði:
- Hægt verður að senda inn mynd í keppnina til miðnættis sunnudaginn 3. janúar 2021
- Kosning hefst mánudagskvöld 4. janúar
- Kosningu lýkur kl 00.00 föstudaginn 8. janúar og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Þessi tiltekna keppni er einungis opin félagsmönnum Fókus. Ekki félagi? Skráðu þig hér.
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né opinberlega annarsstaðar, t.d. Facebook & Instagram
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.