Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA: HREYFING
Þemað að þessu sinni var ákvarðað af styrktaraðila keppninnar sem er Origo / Canon á Íslandi. Hreyfing getur átt sér margar táknmyndir, t.d. íþróttir, rennandi vatn, bíll á ferð, börn að leik, listinn er ansi stór en samt svo skemmtilegur.
Helstu atriði:
- Ljósmynd skal vera tekin á tímabilinu 1. maí til 31. maí árið 2020.
- Hægt verður að senda inn myndir í keppnina til föstudagsins 5. júní
- Kosning hefst mánudaginn 8. júní.
- Kosningu lýkur kl 18.00 föstudaginn 12. júní og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
- Sigurvegari keppninnnar hlýtur Canon PIXMA TS6350 fjölnotaprentara í boði Origo / Canon á Íslandi.
- Athugið, við ætlum að breyta aðeins út af laginu núna og leyfa stjórn Fókus að taka þátt í keppninni. Keppnisstjóri (undirritaður) er sá eini sem kemur að framkvæmd keppninnar og því mun hann sjálfur ekki taka þátt.
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né á Facebooksíðu Fókus
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.