Sigma 28mm f/1.4 Art fyrir Canon til sölu
- kiddi
- Kerfisstjóri
- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
Sigma 28/1.4 Art varð fljótt ein af mínum allra uppáhaldslinsum þegar ég keypti hana nýja í Fótoval í desember 2019. Hún minnti mig á gæðin sem ég hafði áður fengið út úr digital medium format myndavélum sem ég hef átt (Phase One 645DF með P30+ og Pentax 645Z) og ég fullyrti að þessi linsa yrði sko aldrei seld. En svo datt ég í Canon R kerfið og asnaðist til að kaupa mér RF 28-70/2 og þá er eiginlega ekki hægt að réttlæta að eiga Sigma 28/1.4 lengur því miður, og því býð ég hana til sölu.
Hún kostar í dag 187.900 kr hjá fotoval.is, en hún kostar um 220.000 kr hingað komin frá USA ef þú skyldir panta hana erlendis.
Mitt verð: 120.000 - Ég er opinn fyrir skiptum og uppítökum.
Ég er einnig með Canon RF 24-105/4.5-7.1 IS STM til sölu á 50.000 kr. en ég geri annan söluþráð fyrir hana.
Nokkrar myndir sem ég hef tekið með Sigma 28/1.4, ég hef nánast eingöngu myndað með henni galopinni á ljósopi f/1.4 því þar gerast töfrarnir. Ég mæli með að myndirnar verði skoðaðar stórar.Like Wine by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
Fall by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
Þingmannafoss by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
Scandinavian summer dream by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
The Lighthouse by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
The Pathfinder by Kristján U. Kristjánsson, on Flickr
-
- Fókusfélagi
- Póstar: 234
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 9:15 pm
Flottar myndir.
Hvernig reynist RF 28-70/2 linsan ?
Hvernig reynist RF 28-70/2 linsan ?