Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni um mynd mánaðarins
-
kiddi
- Kerfisstjóri

- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
-
Hafðu samband:
Mán Mar 16, 2020 12:04 am
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - MARS 2020
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA: EKKI LANDSLAG
Nú þurfa margir að fara út fyrir þægindarammann, því nú mega landslagsmyndir ekki taka þátt - ekki nema það sé umhverfisportrett en það þarf að vera alveg skýrt að aðalviðfangsefni myndarinnar sé ekki landslagið sjálft.
Helstu atriði:
- Ljósmynd skal vera tekin í mars árið 2020.
- Keppnistímabili lýkur á miðnætti þriðjudaginn 31. mars.
- Hægt verður að senda inn myndir í keppnina til 7. apríl
- Kosning hefst miðvikudaginn 8. apríl.
- Kosningu lýkur kl 18.00 mánudaginn 13. apríl og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Afhending verðlauna fer fram á Fókusfundi þriðjudaginn 14. apríl kl 20.00 með fyrirvara vegna veiruástands.
- Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
- Sigurvegari keppninnar hlýtur Lowepro Pro Messenger 180AW axlartösku, í boði Beco - ljósmyndavörur og þjónusta., og annað sætið hlýtur gjafabréf fyrir myndavélahreinsun.
- Í tilefni þess að verðlaun eru í boði í keppninni munu stjórnendur Fókus og keppnisstjóri EKKI taka þátt í keppninni, til þess að taka af allan vafa um framkvæmd keppninnar.
Innsending mynda:
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né á Facebooksíðu Fókus
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd, myndir án titla verða ekki með í keppninni.
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Í þessari þriðju keppni ætla Beco að styrkja okkur með TVENNUM verðlaunum. Sigurvegarinn hlýtur Lowepro Pro Messenger 180AW vandaða og sérlega flotta axlartösku og annað sætið hlýtur gjafabréf í myndavélahreinsun hjá Beco. Við þökkum Beco kærlega fyrir stuðninginn.

- lowepro1.jpeg (18.3 KiB) Skoðað 9446 sinnum

- lowepro2.jpeg (23.55 KiB) Skoðað 9446 sinnum
Gangi ykkur vel!
-
Elin Laxdal
- Fókusfélagi

- Póstar: 234
- Skráði sig: Þri Des 17, 2019 9:15 pm
Fim Mar 19, 2020 12:40 pm
Þakka þér fyrir Kiddi, góð hugmynd. Bara ein spurning: Hver er munurinn á umhverfisportretti og landslagsmynd ?
-
kiddi
- Kerfisstjóri

- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
-
Hafðu samband:
Fim Mar 19, 2020 12:45 pm
Elin Laxdal skrifaði: ↑Fim Mar 19, 2020 12:40 pm
Þakka þér fyrir Kiddi, góð hugmynd. Bara ein spurning: Hver er munurinn á umhverfisportretti og landslagsmynd ?
Ég myndi halda að í umhverfisportretti þá er manneskja eða eitthvert mannvirki að spila aðalhlutverkið og landslagið er einfaldlega bakgrunnur eða leikari í aukahlutverki

-
Ágúst
- Fókusfélagi

- Póstar: 7
- Skráði sig: Sun Des 29, 2019 11:39 am
-
kiddi
- Kerfisstjóri

- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
-
Hafðu samband:
Sun Mar 29, 2020 10:03 am
Ég veit það er smá lægð yfir Fókusfélaginu okkar þessa dagana vegna ástandsins en keppnirnar okkar munu halda áfram og í þessari keppni eru tvenn verðlaun í boði Beco. Þemað er EKKI LANDSLAG sem er ansi víðtækt en samt krefjandi þema fyrir mörgum, og þið hafið fram á þriðjudaginn 31. mars til að ná verðlaunamyndinni

Þið hafið svo uþb. viku til að vinna hana og koma henni í pósthólfið hjá keppnisstjórninni okkar,
keppni@fokusfelag.is
-
kiddi
- Kerfisstjóri

- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
-
Hafðu samband:
Mið Apr 01, 2020 10:39 pm
Ég vona að þið hafið náð einhverju bitastæðu í marsmánuði og séuð byrjuð að vinna myndirnar, opið fyrir innsendingu í keppnina til 7. apríl
