Síða 1 af 1

Tónleika myndataka

Sent: Þri Jan 21, 2020 6:20 pm
af BaldurE
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Fös Jan 24, 2020 1:49 pm
af Gunnar_Freyr
Skemmtilegar myndir, langbest af honum einum með gítarinn og Tónastöðin logoið í bakgrunni. svipurinn segir allt.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Fös Jan 24, 2020 2:14 pm
af BaldurE
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Jan 24, 2020 1:49 pm
Skemmtilegar myndir, langbest af honum einum með gítarinn og Tónastöðin logoið í bakgrunni. svipurinn segir allt.
Takk fyrir það, ég ætla að gera aðra atrennu á Laugardaginn, þá verða þeir með tónleika í Hafnarfirði, ég er búinn að lyggja yfir Youtube að reyna að læra eitthvað um tónleika myndir.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Fös Jan 24, 2020 7:11 pm
af Gunnar_Freyr
BaldurE skrifaði:
Fös Jan 24, 2020 2:14 pm

Hverju langar þig að ná? Hvað ætlar þú að prufa?

Re: Tónleika myndataka

Sent: Fös Jan 24, 2020 8:14 pm
af BaldurE
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Jan 24, 2020 7:11 pm
BaldurE skrifaði:
Fös Jan 24, 2020 2:14 pm
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Jan 24, 2020 1:49 pm
Skemmtilegar myndir, langbest af honum einum með gítarinn og Tónastöðin logoið í bakgrunni. svipurinn segir allt.
Takk fyrir það, ég ætla að gera aðra atrennu á Laugardaginn, þá verða þeir með tónleika í Hafnarfirði, ég er búinn að lyggja yfir Youtube að reyna að læra eitthvað um tónleika myndir.
Hverju langar þig að ná? Hvað ætlar þú að prufa?
ég hef alltaf verið að halda í sem lægst ISO, bara alltaf í minni myndatöku gegnum tíðina, en það er ekki gott í svona myndatöku að vera með hægan hraða, þó svo Sony vélin ráði vel við lélega birtu þá þarf ég að frysta augnablikið með 1/250 eða yfir, svo ég þarf að prófa það betur. ég held ég ætti að getað náð góðum myndum þannig, ég er með bjartar linsur f/1.4 og Sony a7III, ef ég næ ekki að ná góðum myndum með þvi sett uppi, þá get ég bara hætt þessu :-)

Re: Tónleika myndataka

Sent: Fös Jan 24, 2020 10:50 pm
af kiddi
Ég myndi segja að það sé almennt samþykkt að hreyfð og óskýr mynd er alltaf verri heldur en mynd með mikið suð og þ.a.l. hika ég ekki við að hækka ISO eins mikið og þörf krefur til að tryggja nægilegan lokarahraða. Suð í myndavélum í dag er í rauninni aldrei alvöru vandamál, það er alltaf hægt að gera brúklegar myndir, nánast sama hversu hátt maður fer. Ég skammast mín ekkert fyrir ISO6400 eða ISO12800 - svo framarlega sem myndin er skörp og ekki undirlýst of mikið - því ef myndin er hreyfð, þá eru nánast allar líkur á að hún endi í ruslinu nema í þessi einstaka tilfelli þar sem hreyfð mynd hefur einhvern galdur sem virkar.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Lau Jan 25, 2020 9:02 am
af Gunnar_Freyr
Sammála Kidda. Eitt sem er mjög gaman en á betur við á innitónleikum en það er rear curtain sync með flassi. Kynntu þér það, prufaðu að googla rear curtain sync eða second shutter sync in clubs eða eitthvað álíka. Það er alveg nýr heimur í svona dæmi.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Lau Jan 25, 2020 10:55 am
af BaldurE
Vandamálið er ekki hreifðar myndir í þeim skilningi að þær verði óskýrar, heldur að með minni hraða sýna myndirnar hreifingu, oft getur það verið flott að sjá hreifinguna, en á þessum timapunkti er ég meira að reyna að frista viðfangsefnið.
á flestum tónleikum þar sem leifð er myndataka eru flöss bönnuð, í mínu tilviki þar sem ég er á vegum hljómsveitarinar og er að taka myndir fyrir þá, og þeir vilja síður hafa flass, en á móti kemur að ég get verið alveg ofaní þeim.
þetta er ekki svo sem það sem ég ætla að leggja fyrir mig í ljósmyndun en er gaman að prófa.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Lau Jan 25, 2020 11:59 am
af kiddi
Þá er eina ráðið, fyrst flöss eru bönnuð - að vera með eins bjarta linsu og þú kemur höndum yfir. Hvaða linsu ertu að nota? Ef þú vilt eiga einhvern alvöru sjens á að frysta rammana þá þarftu fasta (prime) linsu með f/1.4 ljósopi.

Re: Tónleika myndataka

Sent: Lau Jan 25, 2020 12:11 pm
af BaldurE
eg nota í þetta 24mm f/1,4 og 50mm f1,4
og eftir þvi sem ég hef kynnt mér þarf ég að vera á að minsta kosti 1/250 sec og byrja á 1600 ISO
en ég prófa mig áfram.