Síða 1 af 1

Mannlíf í Búdapest

Sent: Fös Jan 17, 2020 4:59 pm
af Hallfríður
IMG_4497.jpg
IMG_4497.jpg (206.93 KiB) Skoðað 7460 sinnum
Þetta er frumraun mín að setja myndir inn á síðuna okkar...! Takið viljann fyrir verkið ef e.ð. klúðrast ;) Ég er að fikra mig áfram með nýju vélina mína, CANON EOS R, sem er með alveg ótrúlega mörgum stillingum og að mér finnst verulega frábrugðin gamla hlunknum mínum, sexunni. Á ferðum mínum ytra leita ég uppi að fanga brot af litbrigði mannlífsins og vænti mér góðs af þeirri nýju því hún er fislétt og auðveldara að nota hana handhelt. Ný vél, 35 mm linsa og fálmandi áhugaljósmyndari - gerið svo vel - og góðar kveðjur.Mynd
IMG_0643.jpg
IMG_0643.jpg (257.04 KiB) Skoðað 7460 sinnum
IMG_0651.jpg
IMG_0651.jpg (162.57 KiB) Skoðað 7460 sinnum

Re: Mannlíf í Búdapest

Sent: Lau Jan 18, 2020 11:27 pm
af FilippusJó
Frumraun sem mér finnst hafa tekist vel.

Re: Mannlíf í Búdapest

Sent: Fim Jan 23, 2020 3:32 pm
af Ragnhildur
Mjög skemmtilegar mannlífsmyndir hjá þér Hallfríður :)

Vel gert.