Þetta er frumraun mín að setja myndir inn á síðuna okkar...! Takið viljann fyrir verkið ef e.ð. klúðrast Ég er að fikra mig áfram með nýju vélina mína, CANON EOS R, sem er með alveg ótrúlega mörgum stillingum og að mér finnst verulega frábrugðin gamla hlunknum mínum, sexunni. Á ferðum mínum ytra leita ég uppi að fanga brot af litbrigði mannlífsins og vænti mér góðs af þeirri nýju því hún er fislétt og auðveldara að nota hana handhelt. Ný vél, 35 mm linsa og fálmandi áhugaljósmyndari - gerið svo vel - og góðar kveðjur.