Stúdíóið opnast aftur

Manneskjur í aðalhlutverki. Mannlíf, götuljósmyndun, stúdíómyndir, brúðkaupsmyndir, barnamyndir og íþróttir.
Svara
tryggvimar
Stjórnarmaður
Stjórnarmaður
Póstar: 69
Skráði sig: Þri Jan 28, 2020 10:19 pm
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:

Mið Maí 20, 2020 3:45 pm

Loksins, loksins fékk ég fólk aftur í litla stúdíóið á mánudaginn.

Þetta var, eins og vanalega, skemmtilegt en það var smá óvenjulegt og erfitt tvist í þessu, þar sem um var að ræða svartklædda presta með dökkum / svörtum bakgrunni. Hann Bolli vinur minn leyfði mér að deila einni þessara mynda með ykkur.

Bolli er lýstur með stóru octoboxi með honeycomb griddi, sem er staðsett nánast alveg 90° vinstra megin við myndavélina. Til þess að fá teikningu í axlirnar og örlítil mun á fötunum og bakgrunninum setti ég ljós með litlu softboxi fyrir aftan hann, hátt uppi og beindi þeim í átt að vélinni og svolítið niður. Þar sem ljós úr svona softboxum án grids fer út um allt var trikkið að beina þeim þanngi að þau rétt svo lýstu axlirnar en restin af ljósinu fór eitthvert allt annað. Og til þess að það bánsaði ekki til baka þurfti ég að nota svart áklæði á alla ljósa flesti í nágrenninu.

Virkilega skemmtileg myndataka og klerkurinn ljómandi sáttur við myndirnar :)
lighting-diagram-1589989295.jpg
lighting-diagram-1589989295.jpg (52.01 KiB) Skoðað 7808 sinnum
0W0A9384.jpg
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Mið Maí 20, 2020 6:12 pm

Verulega gott hjá þér :)
Ragnhildur
Póstar: 89
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:32 pm
Hafðu samband:

Mið Maí 20, 2020 9:58 pm

Mjög flott og vel gert. Greinilega úthugsað verkefni sem gekk svona ljómandi vel upp.
Skjámynd
Daðey
Stjórnarmaður
Stjórnarmaður
Póstar: 146
Skráði sig: Sun Des 29, 2019 8:03 pm
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:

Sun Maí 24, 2020 7:18 pm

Vá, góð tækling! Kemur vel út og einmitt, allar útlínur :)
Svara