Blóma-Macro á stofuborðinu
Sent: Sun Apr 19, 2020 11:13 pm
Notaði þetta veður til að mynda inni. Byrjaði á páskagrein en mundi svo að krókusarnir voru farnir að kíkja upp úr beðinu úti. Náði snarlega í einn og árangurinn er skemmtilegur. Krókusarnir fóru á fulla ferð þegar þeir komust í hlýjuna og opnuðu sig eins og myndirnar sýna. Kannski rétt að gera tilraun með Time Lapse?