Síða 1 af 1

Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Þri Sep 07, 2021 10:32 pm
af Elin Laxdal
Kæru félagar.

Vikuáskorunum verður haldið áfram í vetur. Stundum getur verið snúið að finna viðfangsefni sem vekja áhuga félagsmanna. Því óskum við eftir tillögum ykkar ef þið hafið einhverjar á takteinum.
Vinsamlegast póstið svör ykkar hér á heimasíðunni.

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Þri Sep 07, 2021 10:51 pm
af kiddi
Haust, laufblöð, fyrsta vetrarlægðin, fyrsti snjórinn, októberfest, norðurljós, Hrekkjavaka, Jólin - eitthvað svona til að koma boltanum af stað :) Takk fyrir hörkuduglegt starf, þið hafið verið til háborinnar fyrirmyndar þið stelpurnar sem hafið séð um vikuáskoranirnar, viku eftir viku.

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Þri Sep 07, 2021 11:14 pm
af Elin Laxdal
kiddi skrifaði:
Þri Sep 07, 2021 10:51 pm
Haust, laufblöð, fyrsta vetrarlægðin, fyrsti snjórinn, októberfest, norðurljós, Hrekkjavaka, Jólin - eitthvað svona til að koma boltanum af stað :) Takk fyrir hörkuduglegt starf, þið hafið verið til háborinnar fyrirmyndar þið stelpurnar sem hafið séð um vikuáskoranirnar, viku eftir viku.
Takk Kiddi :) - allt góðar hugmyndir í bankann.

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Fim Sep 23, 2021 12:46 pm
af Gunnar_Freyr
Nekt.. væri gaman að sjá fólk takast á við það. Mér þykir það mjög snúið þannig að vel sé farið með það. Örugglega mikil áskorun fyrir marga félaga

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Fös Sep 24, 2021 8:19 am
af Elin Laxdal
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fim Sep 23, 2021 12:46 pm
Nekt.. væri gaman að sjá fólk takast á við það. Mér þykir það mjög snúið þannig að vel sé farið með það. Örugglega mikil áskorun fyrir marga félaga
Takk Gunnar - svo sannarlega áhugavert viðfangsefni - hér hefur skilgreining úrslitaþýðingu svo ekki sé meira sagt......

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Lau Sep 25, 2021 9:02 am
af Gunnar_Freyr
Elin Laxdal skrifaði:
Fös Sep 24, 2021 8:19 am
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fim Sep 23, 2021 12:46 pm
Nekt.. væri gaman að sjá fólk takast á við það. Mér þykir það mjög snúið þannig að vel sé farið með það. Örugglega mikil áskorun fyrir marga félaga
Takk Gunnar - svo sannarlega áhugavert viðfangsefni - hér hefur skilgreining úrslitaþýðingu svo ekki sé meira sagt......
Ég sé fyrir mér eitthvað eins og "án fata en kynfæri ekki í mynd" eða eitthvað slíkt, eða bara bara að fara í boudoir enda búinn að vera að pæla mikið í því með Elínu Björg boudoir ljósmyndara. Það er virkilega spennandi viðfangsefni og alls ekki óviðeigandi eða klámfengið. Þar eru bara sterkar konur í sátt við sjálfa sig. Við fórum líka í pælingar um það sem við köllum dudoir (dude + boudoir) þar sem karlar eru í aðalhlutverki. Við pældum mikið í hverng hægt er að búa til slíkar myndir en halda karlmannlegum formum og stellingum. Ég sat meira að segja fyrir hjá henni og svo krufðum við þetta í þaula og prufuðum aftur. Það var sko hrikalega krefjandi verkefni en hollt fyrir mann sem ljósmyndara

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Lau Sep 25, 2021 5:52 pm
af Sandra Dís
Ég er sammála Gunnari. Það er nefnilega mikill munur á nekt á klámi. Það eru til svo óteljandi flottar myndir af nekt með réttri uppstillingu og hugafari.

En mínar hugmyndir:

samskitpi milli eldra fólk og yngra.

Andstæða.

Þema eins og ákveðinn litir: þá eina viku sem við tileinkum okkur myndatöku þeim lit sem er tekinn fyrir,

dýr

rettró

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Sun Sep 26, 2021 11:03 am
af Elin Laxdal
Sandra Dís skrifaði:
Lau Sep 25, 2021 5:52 pm
Ég er sammála Gunnari. Það er nefnilega mikill munur á nekt á klámi. Það eru til svo óteljandi flottar myndir af nekt með réttri uppstillingu og hugafari.

En mínar hugmyndir:

samskitpi milli eldra fólk og yngra.

Andstæða.

Þema eins og ákveðinn litir: þá eina viku sem við tileinkum okkur myndatöku þeim lit sem er tekinn fyrir,

dýr

rettró
Góðar hugmyndir Sandra Dís - takk fyrir.

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Mán Sep 27, 2021 9:13 am
af tryggvimar
Gunnar_Freyr skrifaði:
Lau Sep 25, 2021 9:02 am
Elin Laxdal skrifaði:
Fös Sep 24, 2021 8:19 am
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fim Sep 23, 2021 12:46 pm
Nekt.. væri gaman að sjá fólk takast á við það. Mér þykir það mjög snúið þannig að vel sé farið með það. Örugglega mikil áskorun fyrir marga félaga
Takk Gunnar - svo sannarlega áhugavert viðfangsefni - hér hefur skilgreining úrslitaþýðingu svo ekki sé meira sagt......
Ég sé fyrir mér eitthvað eins og "án fata en kynfæri ekki í mynd" eða eitthvað slíkt, eða bara bara að fara í boudoir enda búinn að vera að pæla mikið í því með Elínu Björg boudoir ljósmyndara. Það er virkilega spennandi viðfangsefni og alls ekki óviðeigandi eða klámfengið. Þar eru bara sterkar konur í sátt við sjálfa sig. Við fórum líka í pælingar um það sem við köllum dudoir (dude + boudoir) þar sem karlar eru í aðalhlutverki. Við pældum mikið í hverng hægt er að búa til slíkar myndir en halda karlmannlegum formum og stellingum. Ég sat meira að segja fyrir hjá henni og svo krufðum við þetta í þaula og prufuðum aftur. Það var sko hrikalega krefjandi verkefni en hollt fyrir mann sem ljósmyndara
Ég er sammála því sem kemur fram hérna að þetta er tegund ljósmyndunar sem væri gaman að spá í. Þetta væri langstökk án atrennu langt út fyrir minn þægindaramma og ég verð bara að fá að hrósa þér fyrir hugrekkið, Gunnar, að fara í dudoir pælingarnar og sitja fyrir! Það væri gaman að heyra aftur í ykkur spjalla um þetta í Ljósmyndaraspjallinu og fara aðeins í gegnum það sem þið voruð að kryfja.

Margar frábærar hugmyndir komnar fram hér og takk fyrir að standa í þessum vikuáskorunum!

Re: Vikuáskoranir: Tillögur að viðfangsefnum í vetur

Sent: Fös Okt 08, 2021 7:22 pm
af Anna_Soffia
Lýsing frá einu kerti eða öðrum veikum ljosgjafa
Ljós og skuggar