Síða 2 af 4
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Lau Apr 17, 2021 3:18 am
af Þorkell
Blönduós by
Þorkell Sigvaldason, on Flickr
Hér má sjá besta hluta Blönduóss en meðal húsana á myndinni er húsið þar sem afi og amma bjuggu.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Lau Apr 17, 2021 1:03 pm
af Anna_Soffia
Allar myndirnar eru af Fjallabaki syðra.
Ég held yfirleitt vélinni í svona töku og tek vertical myndir. Mér finnst það gefa betri raun, en það er kannski bara leti
Ég nota þetta talsvert mikið einmitt til að losna við bjögunina i víðu linsunni
- Fjallabak-bak laufafells-Fókus_ASÓ--32.jpg (520.59 KiB) Skoðað 3310 sinnum
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 9:30 am
af Svanur
Takk Elín. Jú ég held að þau kallist glitský. Þennan sumardag voru búin að vera einhver háloftaský á sveimi á Austfjörðum og þegar komið var svolítið rökkur ljómuðu þessi fallegu ský í kvöldsólinni. Svo mynduðust skarpar skuggalínur sem settu sérstakan svip þetta. Hef aldrei séð aðra eins skýjasýningu.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 9:33 am
af Svanur
Fallegar myndir Anna Soffía. Skemmtilegur hesturinn á neðstu myndinni.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 9:38 am
af Svanur
Nítján ramma pano-myndin þín Elín er frábær. Rjóma-falleg að litarfari og myndefni. Ótrúlegt að koma svona mörgum myndum saman. Ég hef ekki reynt það.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 10:54 am
af Elin Laxdal
Pís of keik í Lightroom
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 10:56 am
af Elin Laxdal
Fagurt er það og frábærar myndir Anna Soffía. Ég hef spáð í hvort maður ætti að gera "lens correction" á alla rammana í LR áður en myndirnar eru settar saman. Hef prófað það einu sinni en sá engan mun. Var þá með linsu sem bjagaði mjög lítið.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 5:04 pm
af Ottó
Mest myndaði staðurinn þessar munndirnar.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 9:55 pm
af Elin Laxdal
Ætli þetta verði ekki eitt mest myndaða eldgos allra tíma ? Þessi er flott.
Re: Vikuáskorun 15. - 22. apríl
Sent: Sun Apr 18, 2021 9:58 pm
af Elin Laxdal
Tvö panó frá því í mars sl: Sárið eftir aurskriðurnar á Seyðisfirði (13 myndir) og Hérað (9 myndir)