Síða 1 af 1

Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Fim Jan 07, 2021 1:09 pm
af Daðey
Þessa vikuna ætlum við að mynda það sem svo gjarnan einkennir nýtt ár - og kannski sérstaklega eftir erfitt ár 2020. Viðfangsefnið er VON.

Það eru ótalmargar útfærslur með efnið eins og með svo margt tengt ljósmyndun og því ætla ég að setja mjög almenna umfjöllun um myndatöku hér með sem ítarefni https://www.exposureguide.com/top-10-di ... aphy-tips/

Hér eru svo nokkrar myndir sem túlka "von" hver á sinn hátt, fyrir þá sem kjósa að sjá útfærslur annarra á viðfangsefninu https://unsplash.com/s/photos/hope.

Það væri ótrúlega gaman ef þeir sem taka þátt væru til í að setja inn upplýsingar um myndatökuna sína, kannski aðeins um myndefnið og stillingar - en það er auðvitað engin skylda.

Með VON um gott gengi :)

Re: Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Fim Jan 07, 2021 8:57 pm
af Elin Laxdal
Skemmtilegt viðfangsefni Daðey !

Amaryllis
_00A5855-Edit-1.jpg

Re: Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Sun Jan 10, 2021 6:38 pm
af Sara Ella
Mín túlkun á VON er tvennskonar, vonast til að ná betri tökum á næturljósmyndun og VON um bjarta tíma framundan eins og þessi fallegi himinn er þetta kvöldið.

Re: Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Sun Jan 10, 2021 9:44 pm
af Daðey
Sara Ella skrifaði:
Sun Jan 10, 2021 6:38 pm
Mín túlkun á VON er tvennskonar, vonast til að ná betri tökum á næturljósmyndun og VON um bjarta tíma framundan eins og þessi fallegi himinn er þetta kvöldið.
Mjög flott - og skemmtileg "stjörnu" lýsingin þarna fyrir miðri mynd :)

Re: Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Mán Jan 11, 2021 8:27 pm
af BaldurE
brugðið til beggja vona.
2021-01-10 (g) (Pergear 25mm).jpg

Re: Vikuáskorun 7.-13. janúar 2021

Sent: Mán Jan 11, 2021 10:53 pm
af Daðey
BaldurE skrifaði:
Mán Jan 11, 2021 8:27 pm
brugðið til beggja vona.
2021-01-10 (g) (Pergear 25mm).jpg
Töff!!! Skemmtilega viðeigandi mynd!