Síða 2 af 3

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Lau Feb 12, 2022 5:20 pm
af kiddi
Anna_Soffia skrifaði:
Lau Feb 12, 2022 4:54 pm
Ég sé hér umræðu um tiff - er betra að senda myndir í tiff? - Ég flutti mínar út í jpg, get vel gert það í tiff ef það er betra
Sá sem sér um prentunina bað um TIFF ef það er mögulegt, en stór og djúsí (lítið þjöppuð) JPG skjöl eru í fínu lagi, það er ekki nokkur leið að sjá muninn.

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Sun Feb 13, 2022 7:01 pm
af Anna_Soffia
kiddi skrifaði:
Lau Feb 12, 2022 5:20 pm
Anna_Soffia skrifaði:
Lau Feb 12, 2022 4:54 pm
Ég sé hér umræðu um tiff - er betra að senda myndir í tiff? - Ég flutti mínar út í jpg, get vel gert það í tiff ef það er betra
Sá sem sér um prentunina bað um TIFF ef það er mögulegt, en stór og djúsí (lítið þjöppuð) JPG skjöl eru í fínu lagi, það er ekki nokkur leið að sjá muninn.
Ég sendi þær aftur ;)

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Mán Feb 14, 2022 5:50 pm
af Gunnar_Freyr
Anna_Soffia skrifaði:
Sun Feb 13, 2022 7:01 pm
kiddi skrifaði:
Lau Feb 12, 2022 5:20 pm
Anna_Soffia skrifaði:
Lau Feb 12, 2022 4:54 pm
Ég sé hér umræðu um tiff - er betra að senda myndir í tiff? - Ég flutti mínar út í jpg, get vel gert það í tiff ef það er betra
Sá sem sér um prentunina bað um TIFF ef það er mögulegt, en stór og djúsí (lítið þjöppuð) JPG skjöl eru í fínu lagi, það er ekki nokkur leið að sjá muninn.
Ég sendi þær aftur ;)
Móttekið takk

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Þri Feb 22, 2022 8:17 pm
af TotaReykdal
Ég er aðeins að bauka við myndir í sýningar púkkið.. Mig minnir að ég hafi séð einhvers staðar að maður ætti ekki að skerpa myndirnar - þýðir það þá ekki að lagst er gegn því að maður auki contrast, texture, clarity, vibrance dehase og þess háttar en að það megi auka svart, dragi niður highligt, stjórni skuggum og þess háttar ?

Verður skerpan og litadýptin í höndum prentarans ?

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Mið Feb 23, 2022 9:59 am
af Gunnar_Freyr
TotaReykdal skrifaði:
Þri Feb 22, 2022 8:17 pm
Ég er aðeins að bauka við myndir í sýningar púkkið.. Mig minnir að ég hafi séð einhvers staðar að maður ætti ekki að skerpa myndirnar - þýðir það þá ekki að lagst er gegn því að maður auki contrast, texture, clarity, vibrance dehase og þess háttar en að það megi auka svart, dragi niður highligt, stjórni skuggum og þess háttar ?

Verður skerpan og litadýptin í höndum prentarans ?
Ég held að þú ættir bara að vinna myndirnar eins og þú vilt en hafa bara í huga að fara sparlega með þessi atriði. Ef þetta verður of mikið á þetta eftir að fara í gegnum mig, valnefndina og prentarann. Ég myndi ekki hafa stórar áhyggjur af þessu, við hleypum þessu í prentun án þess að fara yfir þetta :)

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Lau Feb 26, 2022 1:16 pm
af ArnarBergur
Afhverju vill hann fá óskerptar myndir?

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Lau Feb 26, 2022 5:32 pm
af ArnarBergur
Er hægt að fá báðar myndirnar prentaðar út þó að önnur yrði bara notuð ?(vitanlega gegn greiðslu)

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Sun Feb 27, 2022 10:29 am
af Gunnar_Freyr
ArnarBergur skrifaði:
Lau Feb 26, 2022 1:16 pm
Afhverju vill hann fá óskerptar myndir?
Þetta eru upplýsingar frá Kidda, sem hann fékk frá prentaranum. Ég geri ráð fyrir að það sé ekki verið að meina að maður megi ekki skerpa myndirnar sínar. Kannski ekki við export þar sem það er boðið upp á það að skerpa fyrir skjá eða skerpa fyrir prent. Ég nota ekki Lightroom svo ég þekki það ekki en slíkt er hægt í Capture One. Ég skal spyrja Kidda.

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Sun Feb 27, 2022 10:33 am
af Gunnar_Freyr
ArnarBergur skrifaði:
Lau Feb 26, 2022 5:32 pm
Er hægt að fá báðar myndirnar prentaðar út þó að önnur yrði bara notuð ?(vitanlega gegn greiðslu)
Örugglega ef þú hefur samband við Ljósmyndaprentun beint og stendur í þessu sjálfur. Ég get ekki bætt á mig einhverju auka flækjustigi sem þarf að fylgja eftir. Nógu margir boltar eru á lofti fyrir :)

Re: Ljósmyndasýning í Ráðhúsinu: Spurningar, svör og almenn umræða

Sent: Sun Feb 27, 2022 3:42 pm
af kiddi
ArnarBergur skrifaði:
Lau Feb 26, 2022 1:16 pm
Afhverju vill hann fá óskerptar myndir?
Þetta með skerpinguna er ekki komið frá prentaranum heldur mér sjálfum.

Það má alveg skerpa, ég vildi bara á vekja athygli á því á fundinum að það er óþarfi að skerpa til þess eins að skerpa. Langflestir eru vanir að skerpa myndir á meðan myndin er í 10-20% af sinni raunupplausn á tölvuskjá sem er pínulítill í samhengi við prentunina sem stendur til að prenta. Ef þú ert að vinna myndina þar sem hún er lítill hluti af 16" fartölvuskjá eða 24-27" tölvuskjá þá hættir mörgum til að skerpa myndirnar alveg helling svo þau sjái skerpinguna á skjánum, en svo þegar sú sama mynd er komin í 90x60cm prentun þá getur skerpingin stungið mann í bossann (pun intended). Lykilatriðið er að hætta að skerpa áður en útlínur verða tvöfaldar á stöðum þar sem mikill contrast er. Stórar myndir á vegg kalla ekki á sömu vinnslu sem flestir gera til að láta myndir poppa á símum.

Ég hef alltaf sagt að maður á aldrei að skerpa myndir fyrr en endanleg útfærsla liggur fyrir, þegar viðkomandi veit hvar og hvernig myndin verður birt, hvort sem það er á Instagram síðu sem verður líklegast skoðuð í síma eða hvort það verði risastór mynd á stofuveggnum, en þessi tvö tilfelli kalla á gjörólíkar nálganir í vinnslu.