Síða 1 af 1

Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 8:10 am
af Gunnar_Freyr
Hæ hæ

Ég vil bjóða meðlimum Fókus að nýta sér stúdíóaðstöðu mína til að taka myndir fyrir jólin. Ég er með allt til alls, ljós og modifiers af öllum toga, triggera fyrir öll möguleg kerfi, förðunaraðstöðu o.fl. Ég get ekki lánað aðstöðuna en get boðið ykkur að koma og vera með mér, leigusamningurinn kveður á um það. Hugsunin bakvið þetta er að þeir sem ekki hafa aðgang að svona aðstöðu, kunna jafnvel lítið í stúdíótökum og langar að læra meira, fái tækifæri til að prufa og fá í leiðinni myndir af sínum nánustu.

Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þessu. ATH þetta er hugsað fyrir gilda meðlimi Fókus. Það er ekki nóg að hafa skráð sig inn á spjallið eða í opnu FB grúppuna.

Gunnar Freyr
863-4452

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 8:45 am
af kiddi
Vel gert og boðið! Er þetta stór aðstaða, væri hægt að koma með 12 manna fjölskyldu og lýsa svo vel sé?

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 9:02 am
af tryggvimar
Virkilega vel boðið hjá þér Gunnar Freyr!

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 9:26 am
af Daðey
Nú vantar sko "like" takkann!!

Frábært framtak :)
Gunnar_Freyr skrifaði:
Mið Sep 22, 2021 8:10 am
Hæ hæ

Ég vil bjóða meðlimum Fókus að nýta sér stúdíóaðstöðu mína til að taka myndir fyrir jólin. Ég er með allt til alls, ljós og modifiers af öllum toga, triggera fyrir öll möguleg kerfi, förðunaraðstöðu o.fl. Ég get ekki lánað aðstöðuna en get boðið ykkur að koma og vera með mér, leigusamningurinn kveður á um það. Hugsunin bakvið þetta er að þeir sem ekki hafa aðgang að svona aðstöðu, kunna jafnvel lítið í stúdíótökum og langar að læra meira, fái tækifæri til að prufa og fá í leiðinni myndir af sínum nánustu.

Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þessu. ATH þetta er hugsað fyrir gilda meðlimi Fókus. Það er ekki nóg að hafa skráð sig inn á spjallið eða í opnu FB grúppuna.

Gunnar Freyr
863-4452

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 9:30 am
af Gunnar_Freyr
kiddi skrifaði:
Mið Sep 22, 2021 8:45 am
Vel gert og boðið! Er þetta stór aðstaða, væri hægt að koma með 12 manna fjölskyldu og lýsa svo vel sé?
Veit ekki með 12 manns en ég myndi treysta mér í 6-7 manns með góðu móti. Linsan sem þyrfti í 12 manns væri kannski óheppilega gleið. Ég skal skoða það, gæti alveg gengið.

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 9:40 am
af kiddi
Þetta var bara spurning til að fá einhverja hugmynd um stærð, ég myndi ekki þurfa á svona sal að halda svo það er ekkert stress að mæla þetta út :)

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 11:11 am
af finnurp
frábært framtak - takk

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 5:07 pm
af Sandra Dís
Hæ. Ég væri svo sannlega til í að nýta þetta frábærta tækifæri. Ég á 4 börn sem mig langar til þess að taka systkina mynd af :D kv. Sandra

Re: Jólafjölskyldumyndir

Sent: Mið Sep 22, 2021 8:38 pm
af Gunnar_Freyr
Sandra Dís skrifaði:
Mið Sep 22, 2021 5:07 pm
Hæ. Ég væri svo sannlega til í að nýta þetta frábærta tækifæri. Ég á 4 börn sem mig langar til þess að taka systkina mynd af :D kv. Sandra
Um að gera. Ég verð í sambandi við þig :D