Síða 1 af 1

Sjálfs-gagnrýni

Sent: Sun Nóv 01, 2020 3:41 pm
af Daðey
Kannski réttara að segja niðurrif en gagnrýni...

Eru fleiri í þessari stöðu? Ég veit alveg að ég á einhverjar frambærilegar myndir til að setja í bókina en einhvernveginn þegar ég fletti í gegnum þær með það í huga að setja í bók þá finnst mér engin nógu góð...

Re: Sjálfs-gagnrýni

Sent: Sun Nóv 01, 2020 5:10 pm
af Þorkell
Þetta hljómar frekar kunnuglega.

Re: Sjálfs-gagnrýni

Sent: Sun Nóv 01, 2020 8:55 pm
af kiddi
Daðey skrifaði:
Sun Nóv 01, 2020 3:41 pm
... þegar ég fletti í gegnum þær með það í huga að setja í bók þá finnst mér engin nógu góð...
Þetta er vandamál sem allir sannir listamenn glíma við, alltaf :) Það er merki um listamann sem er stöðugt að reyna að bæta sig, þegar honum finnst allt eldra vera ómögulegt.

Re: Sjálfs-gagnrýni

Sent: Fim Nóv 05, 2020 11:36 am
af OscarBjarna
Hef oft lent í þessu - maður fær boð um að taka þátt í hinum og þessum keppnum og jafnvel útgáfum en getur ekki valið neitt þar sem ekket er nógu gott og hundsar þetta síðan bara og tekur ekki þátt. Það er ekki gaman að lenda í þessu og stundum er það bara sjálfsöryggi og/eða að geta ekki bara tekið ákvörðun :)
- amk er það þannig hjá mér.

Re: Sjálfs-gagnrýni

Sent: Fim Nóv 05, 2020 1:04 pm
af kiddi
En svo þarf auðvitað að fylgja svona sögum þegar maður loksins asnast til að taka þátt, þá stundum gerist eitthvað gott :) Ég vann t.d. einusinni Canon dSLR í jólaljósmyndakeppni Moggans, og ég þekki einn sem er í Fókus sem vann einusinni risaverðlaun þar sem honum var flogið þvert yfir hnöttinn á fyrsta farrými með lúxushóteli og tilheyrandi fyrir sjálfa afhendinguna :D Nefni engin nöfn........

Re: Sjálfs-gagnrýni

Sent: Fim Nóv 05, 2020 8:37 pm
af OscarBjarna
kiddi skrifaði:
Fim Nóv 05, 2020 1:04 pm

:lol:
Rétt!