Síða 1 af 1

Hvað eru ljósmyndafilterar og til hvers eru þeir?

Sent: Lau Sep 12, 2020 11:18 am
af kiddi
Við Guðjón Ottó Bjarnason skelltum í eitt stykki „fræðslumyndband“ til að sýna notagildi filtera um daginn, þegar við vorum í ljósmyndaferð með vinum okkar. Þetta verkefni átti upphaflega að vera lítið innslag í streymin okkar í Fókus en þetta varð svo aðeins of langt og ítarlegt til þess að þjóna þeim tilgangi svo við ákváðum að skella þessu bara upp á netið fyrir alla. Það er aldrei að vita nema við gerum fleiri svona myndbönd, og þá væri gaman að heyra frá ykkur, hvað þið væruð til í að sjá næst :)


Re: Hvað eru ljósmyndafilterar og til hvers eru þeir?

Sent: Sun Sep 13, 2020 9:22 pm
af einarbjorn
Þetta er flott framtak hjá ykkur en er ekki sniðugt að stofna þráð fyrir filtersblæti ef svo má að orði komast og kannski annan þráð með drónamyndum, sjálfur á ég ekki dróna en hef mjög gaman að skoða drónamyndir.

Re: Hvað eru ljósmyndafilterar og til hvers eru þeir?

Sent: Þri Sep 15, 2020 4:04 pm
af Ragnhildur
Hrikalega flott videó og upplýsandi! Takk fyrir!

Re: Hvað eru ljósmyndafilterar og til hvers eru þeir?

Sent: Mið Sep 16, 2020 5:55 pm
af Þorkell
Smá svona "Behind the scenes".
DSC_7011.jpg