Macro linsu lán

Allt á milli himins og jarðar
Svara
Gunnar_Freyr
Póstar: 155
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm

Þri Apr 07, 2020 8:10 am

Hæ hæ

Ég þarf að redda mér macro linsu fyrir Sony E-mount í 1-2 daga. Extension tubes gætu líka dugað. Er einhver sem getur lánað eða leigt mér slíka græju? Er kannski einhver verslun að leigja svona búnað?

Takk takk
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Þri Apr 07, 2020 8:57 am

Ef þú átt Canon millihring þá get ég lánað þér Canon EF 100/2.8 (ekki IS) sem er algjört dúndur.
Skjámynd
Arngrímur
Fókusfélagi
Fókusfélagi
Póstar: 125
Skráði sig: Lau Nóv 30, 2019 5:24 pm

Þri Apr 07, 2020 9:07 am

Sama hér, ef canon hjálpar er ég með linsur, Zeiss eða canon, sem þú getur fengið.
Gunnar_Freyr
Póstar: 155
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm

Þri Apr 07, 2020 10:30 am

Mig vantar einmitt MC-11 adapter líka. Var að tala við einn sem var að selja slíkan. Hann bakkaði svo út um leið og hann heyrði að ég var í sóttkví þó ég segði að dóttir mín myndi koma og sækja þetta. Hann hefur líklega ekki tekið það trúanlegt að hún væri ekki í sóttkví. Ég reyndi að segja þessum aðila að hún byggi ekki hjá mér en ég heyrði bara aldrei frá honum aftur :/

Ætla að reyna að finna svona adapter og ef það tekst heyri ég í ykkur :)
Gunnar_Freyr
Póstar: 155
Skráði sig: Þri Des 17, 2019 8:36 pm

Mið Apr 08, 2020 3:26 pm

Hvað haldið þið, fann svona adapter. Fæ hann í kvöld ef allt gengur upp.
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Mið Apr 08, 2020 7:36 pm

Glæsó :) Ég sendi þér prívat skilaboð á FB með heimilisfangi ef þú vilt Canon EF 100/2.8 Macro
Svara