[KEPPNI] Hrekkjavaka 2020
Sent: Þri Okt 20, 2020 3:38 pm
Beco að blása til Hrekkjavökuljósmyndakeppni! Þemað getur verið margvíslegt, til dæmis grasker, skuggalegir skuggar, hræðilegir búningar, kirkjugarðar og allt annað skuggalegt og drungalegt sem hægt væri að tengja við Hrekkjavökuna. Hrekkjavakan sjálf er laugardaginn 31. október en ljósmyndina má taka hvenær sem er milli dagsins í dag, 20. október til og með mánudagsins 2. nóvember. Myndum þarf að skila fyrir miðnætti á mánudeginum 2. nóvember og mun kosning opna á þriðjudagskvöldinu þann 3. nóvember.
Sigurvegari keppninnar hlýtur í verðlaun Lowepro Slingshot Edge 250 AW í boði Beco ljósmyndavöruverslunar að verðmæti 17.290 kr ÁSAMT myndflöguhreinsunar að verðmæti 8.000 kr.
Sömuleiðis ætlar Beco að bjóða öllum vinum Fókus á Facebook upp á 20% afslátt af öllum Hahnel afsmellurum, snúrutengdum, þráðlausum og timelapse-kit einnig frá Hahnel. Eina sem þú þarft að gera er að segjast vera í Facebook-grúppu Fókus.
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - HREKKJAVÖKUKEPPNI 20. október - 2. nóvember
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA:HREKKJAVAKAN 2020
Helstu atriði:
Frá og með þriðjudeginum 20. október og til mánudagsins 2. nóvember ætlum við í samstarfi við Sigurvegari keppninnar hlýtur í verðlaun Lowepro Slingshot Edge 250 AW í boði Beco ljósmyndavöruverslunar að verðmæti 17.290 kr ÁSAMT myndflöguhreinsunar að verðmæti 8.000 kr.
Sömuleiðis ætlar Beco að bjóða öllum vinum Fókus á Facebook upp á 20% afslátt af öllum Hahnel afsmellurum, snúrutengdum, þráðlausum og timelapse-kit einnig frá Hahnel. Eina sem þú þarft að gera er að segjast vera í Facebook-grúppu Fókus.
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - HREKKJAVÖKUKEPPNI 20. október - 2. nóvember
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA:HREKKJAVAKAN 2020
Helstu atriði:
- Hægt verður að senda inn mynd í keppnina til miðnættis mánudaginn 2. nóvember
- Kosning hefst þriðjudagskvöld 3. nóvember
- Kosningu lýkur kl 21.00 föstudaginn 6. nóvember og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né opinberlega annarsstaðar, t.d. Facebook & Instagram
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.