Síða 1 af 1

[HRAÐKEPPNI] Næturmynd 6. október 2020

Sent: Þri Okt 06, 2020 10:08 am
af kiddi
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - HRAÐKEPPNI 6. OKTÓBER 2020

Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:

ÞEMA:NÆTURMYND

Helstu atriði:
  • Ljósmynd skal vera tekin milli kl. 20:00-06:00 að nóttu til, 6. október og aðfaranótt 7. október
  • Hægt verður að senda inn mynd í keppnina til kl 18.00 miðvikudaginn 7. október
  • Kosning hefst miðvikudagskvöld 7. október
  • Kosningu lýkur kl 18.00 fimmtudaginn 8. október og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
  • Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
Innsending mynda:
  • Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
  • Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né opinberlega annarsstaðar, t.d. Facebook & Instagram
  • Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
  • Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
  • Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
  • Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Gangi ykkur vel!

Re: [HRAÐKEPPNI] Næturmynd 6. október 2020

Sent: Mið Okt 07, 2020 1:02 pm
af StefánB
Fáir á ferli! Covid 19

Re: [HRAÐKEPPNI] Næturmynd 6. október 2020

Sent: Mið Okt 07, 2020 8:14 pm
af kiddi
Þetta er flott mynd en það hefði verið betra að fá hana í tölvupósti svo hún gæti tekið þátt í keppninni, nafnlaust :)