[KEPPNI#006] Júní 2020 „Rigning“

Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni um mynd mánaðarins
Læst
Skjámynd
kiddi
Kerfisstjóri
Kerfisstjóri
Póstar: 274
Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:

Sun Jún 07, 2020 10:55 pm

LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - JÚNÍ 2020

Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:

ÞEMA: RIGNING
Sigurinn einn og sér verður aðalverðlaunin í þessari keppni þar sem starfsemi Fókus fer að mestu leyti í sumarfrí fram á haustið.

Helstu atriði:
  • Ljósmynd skal vera tekin á tímabilinu 1. júní til 30. júní árið 2020.
  • Hægt verður að senda inn myndir í keppnina til föstudagsins 3. júlí
  • Kosning hefst mánudaginn 6. júlí.
  • Kosningu lýkur kl 18.00 föstudaginn 10. júlí og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
  • Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
Innsending mynda:
  • Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
  • Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né opinberlega annarsstaðar, t.d. Facebook & Instagram
  • Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd
  • Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
  • Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
  • Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Gangi ykkur vel!
Læst