[KEPPNI#003] Mars 2020 „Ekki landslag“
Sent: Mán Mar 16, 2020 12:04 am
LJÓSMYNDAKEPPNI FÓKUS - MARS 2020
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA: EKKI LANDSLAG
Nú þurfa margir að fara út fyrir þægindarammann, því nú mega landslagsmyndir ekki taka þátt - ekki nema það sé umhverfisportrett en það þarf að vera alveg skýrt að aðalviðfangsefni myndarinnar sé ekki landslagið sjálft.
Helstu atriði:
Gangi ykkur vel!
Vinsamlega lesið eftirfarandi punkta vel yfir:
ÞEMA: EKKI LANDSLAG
Nú þurfa margir að fara út fyrir þægindarammann, því nú mega landslagsmyndir ekki taka þátt - ekki nema það sé umhverfisportrett en það þarf að vera alveg skýrt að aðalviðfangsefni myndarinnar sé ekki landslagið sjálft.
Helstu atriði:
- Ljósmynd skal vera tekin í mars árið 2020.
- Keppnistímabili lýkur á miðnætti þriðjudaginn 31. mars.
- Hægt verður að senda inn myndir í keppnina til 7. apríl
- Kosning hefst miðvikudaginn 8. apríl.
- Kosningu lýkur kl 18.00 mánudaginn 13. apríl og munu niðurstöður kosninga birtast í kjölfarið.
- Afhending verðlauna fer fram á Fókusfundi þriðjudaginn 14. apríl kl 20.00 með fyrirvara vegna veiruástands.
- Þessi tiltekna keppni er opin öllum, bæði Fókusfélögum og öllum notendum spjallkerfisins.
- Sigurvegari keppninnar hlýtur Lowepro Pro Messenger 180AW axlartösku, í boði Beco - ljósmyndavörur og þjónusta., og annað sætið hlýtur gjafabréf fyrir myndavélahreinsun.
- Í tilefni þess að verðlaun eru í boði í keppninni munu stjórnendur Fókus og keppnisstjóri EKKI taka þátt í keppninni, til þess að taka af allan vafa um framkvæmd keppninnar.
- Aðeins ein ljósmynd á hvern keppanda.
- Ljósmyndin má ekki hafa verið áður birt hér á spjallinu né á Facebooksíðu Fókus
- Ljósmynd skal senda með tölvupósti á netfangið keppni@fokusfelag.is.
- Nauðsynlegt er að stuttur titill fylgi hverri ljósmynd, myndir án titla verða ekki með í keppninni.
- Hámarksstærð viðhengja er 25 megabæti og eingöngu verður tekið við JPEG/JPG skrám.
- Undirskrift eða vatnsmerki er EKKI leyfilegt á myndum, höfundamerktar myndir verða ekki með í keppninni.
- Engin hámarksstærð er á myndum en lágmarksstærð er 900 pixlar á breiddina.
Gangi ykkur vel!