Síða 1 af 1

Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 7:04 pm
af Gunnar_Freyr
Hvað get ég gert til að gera þessa betri, er ekki sáttur við hana.

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 7:59 pm
af Ottó
Sæll hvað viltu fá útúr þessari mynd eða hvað er að plaga þig ?

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 8:04 pm
af Ottó
Þetta er ca þannig sem ég myndi vilja hafa hana sjálfur.

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 8:38 pm
af Elin Laxdal
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 7:04 pm
Hvað get ég gert til að gera þessa betri, er ekki sáttur við hana.
Er þetta orginalinn eða er hún kroppuð ?

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 9:52 pm
af Gunnar_Freyr
Elin Laxdal skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 8:38 pm
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 7:04 pm
Hvað get ég gert til að gera þessa betri, er ekki sáttur við hana.
Er þetta orginalinn eða er hún kroppuð ?
Hún er nánast ekkert kroppuð, örlítið af hægra megin og niðri en ekkert sem telur, bara eitt smotterí sem fór í taugarnar á mér.

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 9:55 pm
af Gunnar_Freyr
Ottó skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 8:04 pm
Þetta er ca þannig sem ég myndi vilja hafa hana sjálfur.
Já ég skil þig, var búinn að fara út í svipað í einni útgáfunni. Veit ekki hvað mér finnst vanta. Þetta var svakalega fallegur staður og mér fannst myndin ekki ná því einhvern veginn. Það er svo sem ekkert að myndinni "per se" en ég er bara ekki að fíla hana.... Kannski ef ég kíki á hana á morgun....

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Fös Ágú 20, 2021 10:01 pm
af kiddi
Þetta er geggjaður staður en ég er ekki viss um að myndvinnsla geti gert hana mikið betri, hún er svolítið flöt en það er ekki myndvinnslunni að kenna heldur vantar dramatík í ljósið á staðnum, persónulega tek ég sjaldan landslagsmyndir um hásumar því birtan einfaldlega leyfir það ekki, maður fær alltaf flottustu birtuna á veturna, vorin og haustin en mjög sjaldan að degi til á sumrin því sólin er svo hátt uppi og engin dýnamík í gangi.

Re: Hvað þarf ég að gera við þessa?

Sent: Lau Ágú 21, 2021 1:12 pm
af Ottó
Gunnar_Freyr skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 9:55 pm
Ottó skrifaði:
Fös Ágú 20, 2021 8:04 pm
Þetta er ca þannig sem ég myndi vilja hafa hana sjálfur.
Já ég skil þig, var búinn að fara út í svipað í einni útgáfunni. Veit ekki hvað mér finnst vanta. Þetta var svakalega fallegur staður og mér fannst myndin ekki ná því einhvern veginn. Það er svo sem ekkert að myndinni "per se" en ég er bara ekki að fíla hana.... Kannski ef ég kíki á hana á morgun....
Eða bara fara aftur á staðinn í betri birtu :-)