Upplausn á skjáum
- kiddi
- Kerfisstjóri
- Póstar: 274
- Skráði sig: Þri Nóv 26, 2019 11:34 pm
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
Það sem er mest hægt að mæla með þessa dagana væri 27" skjár með 2560x1440 upplausn með IPS tækninni, en IPS skjáir eru langbestir með tilliti til myndvinnslu því þeir sýna góða litabandvídd og án þess að grána út í hornin eins og aðrar tegundir eiga til að gera.
Ég gæti mælt heilshugar með þessum t.d., þú færð hvergi meira fyrir peninginn og ég get vottað að AOC er gott merki þó það sé lítið þekkt:
https://www.tl.is/product/27-q27p1-ips- ... x1440p-has
Ef peningar eru ekki fyrirstaða, þá á ég svona sjálfur og er þvílíkt ánægður, 32" skjár með 4K upplausn og frábæra litabandvídd:
https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/To ... 224.action
Hvað varðar tölvuna sjálfa, þá eru nær allar tölvur ansi góðar í dag með tilliti til myndvinnslu, Lightroom er jafn ömurlega hægvirkt á öllum tölvum Sama hvort þær kosta 150þ. eða 500þ. Það sem skiptir mestu máli fyrir myndvinnslu (Lightroom/Photoshop) er að hafa hraðvirka gagnageymslu (SSD, m.2 drif) og helst ekki minna en 16 GB af vinnsluminni. Örgjörvi og skjákort eru eiginlega aukaatriði, ekki nema þú sért atvinnumaður sem þarf að vista út hundruðir mynda á hverjum degi.