Síða 1 af 1
Verðlagning?
Sent: Mið Mar 31, 2021 4:47 pm
af Daðey
Hæhæ
Ég er með 5dmiii, batterygrip, L bracket, hleðslutæki, ól, og kort sem ég veit ekki hvernig ég ætti að verðleggja sem pakka. Myndi alveg þiggja aðstoð frá einhverjum sem hefur verðskyn á þetta
Hef ég einhverja leið til að sjá hversu mikið hún er skotin annað en að láta lesa af hjá Beco eða öðrum?
Re: Verðlagning?
Sent: Fim Apr 01, 2021 12:13 am
af kiddi
Það er forrit sem kallast MagicLantern sem þú setur á minniskortið, ég hef notað þetta margoft með góðum árangri. Þetta forrit býður uppá óteljandi hluti og þar á meðal nákvæman rammafjölda, en þú þarft smá þolinmæði og kynna þér hvernig uppsetningin á þessu virkar
https://magiclantern.fm/
Hvað varðar verðlagningu, þá er mjög erfitt að selja notað myndavéladót á Íslandi í dag því framboð er meira en eftirspurn svo það eru í raun engin gangverð því það eru svo fáir að kaupa. Mér sýnist algeng söluverð á ljósmyndaspjallborðum í USA vera frá $750 - $950 fyrir sambærilegan pakka og þú ert að selja, sem gefur manni verðbilið 120-150 þús miðað við löglegan innflutning til landsins. Mér sýnist 5D Mark IV hafa verið að fara á 220-250þús undanfarið. Þetta ætti vonandi að gefa þér einhverjar hugmyndir
Re: Verðlagning?
Sent: Lau Apr 10, 2021 9:20 pm
af Daðey
kiddi skrifaði: ↑Fim Apr 01, 2021 12:13 am
Það er forrit sem kallast MagicLantern sem þú setur á minniskortið, ég hef notað þetta margoft með góðum árangri. Þetta forrit býður uppá óteljandi hluti og þar á meðal nákvæman rammafjölda, en þú þarft smá þolinmæði og kynna þér hvernig uppsetningin á þessu virkar
https://magiclantern.fm/
Hvað varðar verðlagningu, þá er mjög erfitt að selja notað myndavéladót á Íslandi í dag því framboð er meira en eftirspurn svo það eru í raun engin gangverð því það eru svo fáir að kaupa. Mér sýnist algeng söluverð á ljósmyndaspjallborðum í USA vera frá $750 - $950 fyrir sambærilegan pakka og þú ert að selja, sem gefur manni verðbilið 120-150 þús miðað við löglegan innflutning til landsins. Mér sýnist 5D Mark IV hafa verið að fara á 220-250þús undanfarið. Þetta ætti vonandi að gefa þér einhverjar hugmyndir
Kærar þakkir Kiddi
Þetta reddaði mér alveg