Síða 2 af 2
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Sun Apr 11, 2021 9:36 pm
af ArnarBergur
Jæja, þá er ég loksins búinn að renna í gegnum myndir mínar frá kvöldröltinu
Ottó var ekkert fyrir mér, enda nóg pláss haha
Takk fyrir gott en stutt rölt, hefði viljað mæta mun fyrr en stundum gleymir maður að það tekur smá tíma að keyra niður á Gróttu úr breiðholtinu
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Sun Apr 11, 2021 10:09 pm
af Elin Laxdal
Flottar myndir Arnar.
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Mán Apr 12, 2021 12:16 am
af Svanur
Virkilega fallegar myndir hjá ykkur.
Ég sé að ég hef ýmislegt eftir að læra varðandi notkun fallegs forgrunns í sólarlagsmyndum.
Hér eru nokkur skot.
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Mán Apr 12, 2021 8:08 am
af Svanur
Arnar Bergur, ef ég má spyrja, hvaða linsu og stillingar ertu að nota í neðstu myndinni með græna steininum? Sérlega góð skerpa og litir í henni. Afar vel heppnuð mynd.
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Mið Apr 14, 2021 11:47 pm
af ArnarBergur
Svanur skrifaði: ↑Mán Apr 12, 2021 8:08 am
Arnar Bergur, ef ég má spyrja, hvaða linsu og stillingar ertu að nota í neðstu myndinni með græna steininum? Sérlega góð skerpa og litir í henni. Afar vel heppnuð mynd.
Ég er með Canon R og nota 16-35 Mark 3 linsu - notaði þarna polarizer og medium 0.9 grad filter, myndin er tekinn í 3 hlutum, forgrunnur, steinninn og svo himinnn, ein er tekin 1/5 úr sek, næsta í 1,6 sek og síðasta í 13sek og sett saman í lightroom, unnið þar og færð svo yfir í color efex 2 frá Nik softwere, notaði iso 100 og f9
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Sun Apr 18, 2021 11:47 am
af Andrjes
Ótrúlega flottur afrakstur þetta kvöld hjá ykkur öllum