Síða 2 af 2
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fim Jún 11, 2020 1:44 am
af ArnarBergur
Ragnhildur skrifaði: ↑Mið Jún 10, 2020 11:48 pm
ArnarBergur skrifaði: ↑Mið Jún 10, 2020 6:41 pm
Þið sjáið hver er fyrri og hver er seinni
Mjög töff mynd. Ég fíla litina - og áferðina - rosalega í seinni
Takk fyrir það
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fim Jún 11, 2020 8:09 am
af Arngrímur
Já við týnum okkur stundum í græjunum, en eins og sést er það ljósmyndarinn sem gerir make og breake.
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fim Jún 11, 2020 8:47 pm
af Þráinn
Hérna koma nokkrar myndir frá norðurendanum.
Ég hafði aldrei komið á Hvaleyrina áður svo maður vissi ekkert hvert maður ætti að fara né hvernig væri best að bera sig að.
Þessar myndir eru nokkuð hefðbundnar, sem fyrsta atrenna að svæðinu, en kannski finnur maður eitthvað meira originalt í næstu ferð.
- _IMG9907.JPG (273.04 KiB) Skoðað 12269 sinnum
- _IMG9918.JPG (349.29 KiB) Skoðað 12269 sinnum
- _IMG9928.JPG (336.62 KiB) Skoðað 12269 sinnum
- _IMG9931.JPG (295.68 KiB) Skoðað 12269 sinnum
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fim Jún 11, 2020 9:23 pm
af Ragnhildur
Arngrímur skrifaði: ↑Fim Jún 11, 2020 8:09 am
Já við týnum okkur stundum í græjunum, en eins og sést er það ljósmyndarinn sem gerir make og breake.
Takk fyrir þetta, Arngrímur.
Svo eru tvær hérna í viðbót. Ég held að þetta sé vinur minn Ólafur á myndinni. Hér er sama tækni, bracket-uð myndataka og 3 myndir settar saman í HDR.
Þetta er sama myndin nema í lit og B&W. Ég get ekki ákveðið hvor mér finnst flottari
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fim Jún 11, 2020 11:04 pm
af kiddi
Ragnhildur skrifaði: ↑Fim Jún 11, 2020 9:23 pm
Þetta er sama myndin nema í lit og B&W. Ég get ekki ákveðið hvor mér finnst flottari
Í þessu tilfelli finnst mér svarthvíta myndin tvímælalaust betri
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fös Jún 12, 2020 8:41 am
af Þórir
Nokkrar frá mér, ekki alveg sáttur við útkomuna og ég nennti ekki að eyða miklum tíma í vinnsluna þannig að ég bætti bara við dass af clarity, þá varð þetta fjarska fallegt.
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fös Jún 12, 2020 8:39 pm
af friðrik
Hérna eru tvær frá mér, þetta var bara annsi gaman.
Myndirnar eru teknar á japanska myndavél og eitthvað annað dót með.
Ég var í góðri úlpu, húfu en gleymdi vetlingunum heima.
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Fös Jún 12, 2020 8:58 pm
af ArnarBergur
Jæja, koma fleiri myndir frá mér.
Allar teknar með Venus Optics 12 mm linsu
Takk fyrir hittinginn
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Lau Jún 13, 2020 7:33 pm
af tryggvimar
Frábærar myndir hjá ykkur!
Re: Sumarrölt á Hvaleyri 2020
Sent: Mán Jún 15, 2020 10:51 pm
af Daðey
Hvaleyrarmyndin mín var eins og búist var við með fjólublárri dulu yfir sér eins og sjá má hér neðar, hann var öllu sterkari, ég dró niður í honum og finnst myndin bara pínu dulúðleg fyrir vikið. Liklega það skásta sem mátti ná úr þessu plastdóti...
En ég lét freistast og fór og keypti mér Nisi Filter kit, advanced utgáfuna þökk sé afslætti fyrir Fókusmeðlimi hjá Origo...og svo nú er bara að æfa sig annað kvöld.
Ég er búin að vera að skoða youtube og ýmislegt, en það sem enginn minnist á er...er fólk almennt búið að ákveða sig og græja sig heima (til að forðast ryk við að skipta um filtera) eða með allt heila klabbið með sér? Ef það fyrrnefnda, hvað mynduð þið velja ykkur fyrir sólarlagsmyndir morgundagsins?