110-140 ára gamlar „lifandi“ ljósmyndir úr Reykjavík
Sent: Fös Júl 15, 2022 1:43 pm
Ég vinn við kvikmyndagerð, aðallega hreyfigrafík og tæknibrellur. Ég fékk það verkefni í vor að færa líf í gamlar ljósmyndir úr Reykjavík, fyrir sýningu sem er í Borgarsögusafni Reykjavíkur, á Aðalstræti 10. Þessar myndir eru flestar 110-140 ára gamlar og voru teknar á glerplötur. Margar ljósmyndanna voru ævintýralega illa farnar svo það þurfti talsverða hreinsunarvinnu á hverja einustu mynd áður en vinna gat hafist. Í kjölfarið þurfti ég að maska út forgrunnsatriði eins og fólk, bíla og byggingar, mála inn holurnar sem urðu eftir og skella svo forgrunnsatriðunum á nýja „layera“ ofan á allt, og því næst var hægt að varpa myndunum á þrívíddarplötur, þetta er tækni sem kallast „camera projection“. Hljóðheimurinn var unninn af Nicolas Liebing. Hér kemur lítið og stutt brot af því sem má sjá á sýningunni, á stóri tjaldi í 5.1 hljóðumhverfi.
Vonandi hafið þið gaman að þessu, og ekki hika við að skjóta spurningum ef þið hafið þær
Smellið hér til að sjá sýnishornið, eða skellið ykkur á sýninguna niðri í miðbæ til að sjá lengri mun útgáfu af þessu með fleiri myndum
https://augnablik.is/borgarsogusafn-reykjavikur