Síða 1 af 1
Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Fim Jún 11, 2020 11:41 pm
af Gunnar_Freyr
Í dag lenti ég í mjóg óskemmtilegri lífsreynslu. Ég tók að mér verkefni sem m.a. var að taka myndir í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Ég var því klyfjaður af búnaði þegar dóttir mín lendir skyndilega í aðstæðum sem hún ræður ekki við og það var ekkert annað í stöðunni en að stökkva á eftir henni og draga hana upp. Ég var sem sagt með bakpokann minn á mér og allt í honum fékk duglegt bað. Nú er bara að bíða og sjá hvort ég hafi náð að draga allan rakann úr. Lítur bara nokkuð vel út held ég. Vonandi á ég myndavél í fyrramálið
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Fös Jún 12, 2020 12:10 am
af kiddi
Eff...ooo.... ká ká!
Vona að tryggingarnar bjargi þér ef illa fer :/
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Fös Jún 12, 2020 8:16 am
af Gunnar_Freyr
Er með sérstakar tryggingar en veit ekki hvort þær taki til svona. Ég sé engan raka inn í linsum og það kviknar á öllum búnaði. Spurning hvort fókus mótorar eða eitthvað í linsunum hafi eitthvað breyst? Svo er spurning hvað klór gerir við nanohúðina á linsuglerinu
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Fös Jún 12, 2020 8:23 am
af Þórir
Úff, vona allt fari vel.
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Fös Jún 12, 2020 9:07 pm
af ArnarBergur
Gunnar_Freyr skrifaði: ↑Fös Jún 12, 2020 8:16 am
Er með sérstakar tryggingar en veit ekki hvort þær taki til svona. Ég sé engan raka inn í linsum og það kviknar á öllum búnaði. Spurning hvort fókus mótorar eða eitthvað í linsunum hafi eitthvað breyst? Svo er spurning hvað klór gerir við nanohúðina á linsuglerinu
Þá ætti þetta allt að vera tryggt, ef þú ert búinn að skrá allan þann búnað sem þú telur verðmætan á lista hjá þínu tryggingarfélagi.
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Mán Jún 15, 2020 10:35 am
af Daðey
ArnarBergur skrifaði: ↑Fös Jún 12, 2020 9:07 pm
Gunnar_Freyr skrifaði: ↑Fös Jún 12, 2020 8:16 am
Er með sérstakar tryggingar en veit ekki hvort þær taki til svona. Ég sé engan raka inn í linsum og það kviknar á öllum búnaði. Spurning hvort fókus mótorar eða eitthvað í linsunum hafi eitthvað breyst? Svo er spurning hvað klór gerir við nanohúðina á linsuglerinu
Þá ætti þetta allt að vera tryggt, ef þú ert búinn að skrá allan þann búnað sem þú telur verðmætan á lista hjá þínu tryggingarfélagi.
Já, er það ekki flóknara en svo að gefa upp hlutina? Var einmitt að pæla í þessu. Væntanlega eru þær þa metnar út frá serialnumber ef til þess kemur eða hvað?
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Sun Jún 21, 2020 10:39 pm
af Birkir
Ég hef lennt í því að missa dótið mitt í vatn. Linsur hafa breyst í fiskabúr og þolað það. Fer að mestu eftir því hversu vatnið er hreint. Láttu það bara þorna vel og lengi áður en þú hleypir straum á það.
Re: Stökk út í sundlaug með allan búnaðinn
Sent: Mán Jún 29, 2020 1:58 pm
af Gunnar_Freyr
Birkir skrifaði: ↑Sun Jún 21, 2020 10:39 pm
Ég hef lennt í því að missa dótið mitt í vatn. Linsur hafa breyst í fiskabúr og þolað það. Fer að mestu eftir því hversu vatnið er hreint. Láttu það bara þorna vel og lengi áður en þú hleypir straum á það.
þetta fór allt vel held ég. hef ekki tekið eftir neinu ennþá allavega
