Takk fyrir frábært kvöld. Góð mæting gaman að hitta félaganna aftur og ekki skemmdi gott veður fyrir þó að það væri aðeins smá næðingur.
Kveðja
Ferðanefndin
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Þri Apr 06, 2021 10:40 pm
af Guðmunda K G
Takk fyrir sömuleiðis,gaman að hitta félagana aftur
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Þri Apr 06, 2021 11:04 pm
af Ottó
Rétt náði einni mynd áður en ég var rekin frá og fór svo í björgunar leiðingur að finna dróna(sem fannst)
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Þri Apr 06, 2021 11:20 pm
af tryggvimar
Ég kom heldur seint og rétt náði síðustu kvöldsólargeislunum. En þetta var mjög skemmtilegt, takk fyrir mig!
0W0A0006.jpg (812.15 KiB) Skoðað 139316 sinnum
0W0A0005.jpg (783.11 KiB) Skoðað 139316 sinnum
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Mið Apr 07, 2021 11:30 am
af kiddi
Takk fyrir mig, þetta var ferlega gaman. Ég og Þórir færðum okkur að lokum frá Gróttu yfir á golfvallarsvæðið og skutum fullt af fjarskafallegum myndum af gosstöðvunum. Hér er ein samsett úr 57 long-exposure myndum teknar með 500mm linsu. Ég prófaði líka að skella 1.4x + 2x margföldurum aftan á 500/4 linsuna mína sem gerði hana að 1400mm linsu en útkoman úr því er ekki birtingarhæf þar myndirnar hjá mér voru allar hreyfðar, það þarf held ég að steypa grunn fyrir svoleiðis fíflagang.
Svo er hægt að sjá þessar sömu 57 myndir sem lifandi myndskeið hér:
Re: Kvöldrölt 06.04.2021 Grótta
Sent: Mið Apr 07, 2021 1:33 pm
af Þórir
Þegar að ég komst að eftir að Guðjón færði sig þá náði ég þessum.
Svo fór ég með Kidda út á gólfvöll og þetta er ein útkoman af því.