Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Augnablik til framtíðar - Stórglæsileg fagstefna og afmælishátíð Ljósmyndarafélags Ísland
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Augnablik til framtíðar - Stórglæsileg fagstefna og afmælishátíð Ljósmyndarafélags Ísland PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Vefstjóri   
föstudagur, 05 maí 2006

Ljósmyndarafélag íslands er 80 ára um þessar mundir og af því tilefni efnir félagið til fagstefnu og afmælishátíðar á Grand Hótel helgina 13. og 14. maí. Dagskráin verður tvíþætt, annars vegar fyrir fagljósmyndara á laugardeginum og hins vegar fyrir allt áhugafólk um ljósmyndun á sunnudeginum.

Eftirfarandi frétt var birt á vef Samtaka Iðnaðarins.

Athugið að dagskráin á sunnudeginum er opin öllum en á laugardeginum einungis fagaðilum. 

Fagstefnan, sem haldin er í samvinnu við ýmsa birgja á sviði ljósmyndunar, er einungis ætluð atvinnuljósmyndurum en þar koma m.a. fram mjög þekktir fyrirlesarar á borð við Christopher Morris, Michele Clement og Pia Sönströd. Í tengslum við afmælishátíðina gefur félagið út veglega bók með myndum félagsmanna.

DAGSKRÁ LAUGARDAGINN 13. MAÍ:

------------------------------------------------------------------------------------------------------

Frá 11:00 til 12:00 í salnum Gallerí:

Aðalfundur Ljósmyndarafélags Íslands

Aðalfundurinn er einungis fyrir félagsmenn.

------------------------------------------------------------------------------------------------------

Frá 13:00 til 17:00 í salnum Gallerí og Dal:

Augnablik til framtíðar - Fagstefna fyrir alla fagaðila í ljósmyndun

Frá 16:00 til 18:00 í salnum DAL (við hlið Gallerís):

Canon sýningarherbergi

Í lok dagskrár um kl. 17:00 býður Nýherji og Canon gestum léttar veitingar.

Fundarstjóri:

Gunnar Leifur Jónasson, formaður Ljósmyndarafélags Íslands.

 

ATH.: AÐEINS 60 SÆTI Í BOÐI!  Skráning á fagstefnuna fer fram hér! 

------------------------------------------------------------------------------------------------------

Frá 19:00 á Grand Hótel:

Hátíðarkvöldverður í tilefni 80 ára afmælis Ljósmyndarafélags Íslands

Hátíðarkvöldverðurinn er einungis fyrir félagsmenn.

ATH.: Skráning á kvöldverðinn fer fram hér!

     

------------------------------------------------------------------------------------------------------

OPIN DAGSKRÁ SUNNUDAGINN 14. MAÍ:

Frá 13:00 til 17:00 í salnum Hvammi:

Afmælishátíð Ljósmyndarafélags Íslands

 

  • Formaður félagsins setur hátíðina
  • Heiðranir
  • Myndasýning: Hasselblad sýnir Íslandsmyndir
  • Fyrirlestur: Christopher Morris fréttaljósmyndari frá Vancouver, Canada
  • Sölu- og þjónustuaðilar á myndavélum og tengdum búnaði kynna vöru sína
  • Dagskrárlok um kl. 17:00.

------------------------------------------------------------------------------------------------------

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Nánari upplýsingar um félagið og afmælisdagskrána veitir Gunnar Leifur Jónasson, formaður, í síma 564 6440, netfang Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík