Forsíða
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Nýjar myndir í myndaalbúmi












Fókusfundur 7. febrúar - fundarboð PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
föstudagur, 03 febrúar 2012
Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 7. febrúar og hefst hann kl. 20:00.

Dagskrá fundar:

Lightroom fundur

Kim Mortensen ætlar segja frá og sýna notkun á Import, Develop og Export hlutanum í Lightroom 3.

Þau ykkar sem ekki eruð þegar farin að nota Lightroom þá getið þið sótt prufuútgáfu af LR3 smellið hér, prufuútgáfan virkar í 30 daga frá því að hún er sótt. Skoðið forritið og prófið.

Einnig geta þeir sem vilja sótt sér prufuútgáfu af LR4 og virkar hún út mars.

Til þess að ná sér í prufuútgáfu af LR4 þá smellið hér.

Hafið samt í huga að eingöngu verður farið í Lightroom 3.

Hlé

Nú ætlum við að taka upp þá nýbreytni að leyfa þátttakendum í MÁV verkefninu á vef Fókus að velja sína bestu MÁV mynd síðasta mánaðar og skoðum við innsendar myndir.

Sendið inn MÁV mynd síðasta mánaðar á Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það í síðasta lagi mánudaginn 6. febrúar fyrir miðnætti. Hámark 1 myndir á mann.

Merkið myndirnar ykkar með nafni ykkar og nr.1
Dæmi: Jón 1.jpg

Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.

Hvatning, umsagnir og ráðleggingar eru að sjálfsögðu vel þegnar um myndirnar.

Höldum síðan áfram með Lightroom umræður það sem eftir lifir fundar.

Umsjón fundar

Filippus Jóhannsson



 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík