|
Fókusfundur 10. janúar - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
fimmtudagur, 05 janúar 2012 |
Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 10.janúar og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Marteinn S. Sigurðsson ætlar að sýna okkur og fjalla um næturljósmyndun í máli og myndum.
Eftir hlé ætlum við að skoða innsendar næturmyndir þar sem myndir eru teknar að næturlagi við hvaða aðstæður eða samhengi sem ykkur dettur í hug.
Send.ið inn næturmynd eða myndir á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
mánudaginn 9. janúar fyrir miðnætti. Hámark 5 myndir á mann.
Merkið myndirnar ykkar með nafni ykkar og nr.1-5
Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Umsjón Fundar
Kim Mortensen
|