|
Jólafundur Fókus - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurður Pétursson
|
|
mánudagur, 12 desember 2011 |
|
Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 13. desember og hefst hann kl. 20:00.
Þetta er jólafundur þar sem allir koma með: - köku á kökuhlaðborðið
- jólapakka til að taka þátt í jólapakkaleiknum (verðmæti 1500 - 2000 kr.)
- og þeir sem vilja koma með smákökur til að taka þátt í smákökukeppninni.
Salurinn verður jólaskreyttur, heitt súkkulaði, kaffi og gos verður í boði hússins.
Komum öll saman, skemmtum okkur og gæðum okkur á kökum svona rétt fyrir jólin.
Dagskrá:
- Ávarp formanns og afhending Árbókar.
- Smákökukeppni
- Kaffi
- Jólapakkaleikurinn
Umsjón fundar: Skemmtinefnd.
|