|
Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 29. nóvember og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Kropp myndar, eða öðru nafni skurður myndar. Kim Mortensen ætlar að taka fyrir skurð myndar.
Hvers vegna ætti ég að skera mynd sem mér finnst annars góð?
Get ég bætt myndina með skurði?
Förum yfir nokkrar hugmyndir og myndir sem við prófum að skera í sameiningu.
Ef þið eigið myndir sem ykkur langar að fá álit á með því að skera þær. Þá endilega sendið þær á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
í stærðinni 1024 pixlum á langhlið í 72pk.
Eftir hlé ætlum við að skoða innsendar Prinspólo myndir þar sem Prinspólo er í hlutverki við hvaða aðstæður eða samhengi sem ykkur dettur í hug.
Sendið inn Prinpólo mynd eða myndir á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
mánudaginn 28. nóvember fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar ykkar með nafni ykkar og nr.1-5
Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Umsjón fundar: Kim Mortensen |