Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Landmannalaugar haustferð Fókus - ljósmyndaferð
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Landmannalaugar haustferð Fókus - ljósmyndaferð PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
sunnudagur, 08 ágúst 2010
Síðsumars og haustferð Fókus verður 27. – 29. ágúst

Farið verður í Landmannalaugar með gistingu í Hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum.

Gist verður í sérhúsi, þar sem aðstaða er til eldunar, en í siðustu ferðum okkar hefur það gefist vel og skapast góð stemming meðal þátttakenda. (Hugsanlegt er að fleiri verði í húsinu þar sem það er með fleiri herbergi en við munum nýta).

Gist verður í svefnpokaplássi og hafa verið fengin sjö herbegi og er hægt að velja um eins eða tveggjamanna herbergi.

Verð á gistingu í tvær nætur:

Tveggja manna herbergi 8.100 kr.
Eins manns herbergi 13.400 kr.

Þáttakendur í ferðinni taki með sér svefnpoka eða sæng efir því hvað hver vill. Þá hefur hver þáttakandi fyrir sig, morgunverð, nesti á laugardag og sunnudag. Kvöldmatur verður sameiginlegur á laugardagskvöldi, gerum við ráð fyrir að grilla og verður keypt sameiginlega í matinn og rukkað svo sér fyrir það.

Hafa skal með sér hlýjan og skjólgóðan fatnað. Akstur fer eftir þvi hvert keyrt verður, fyllt á bílana í byrjun ferðar og gert upp í lok ferðar. En geta má þess að akstur Reykjavík - Landmannalaugar er 194 km það gera 398 km. fram og til baka, plús annar akstur.

Miðað við aksturinn í ferðinni í Veiðivötn sem var um 500 km væri ekki ólíklegt að miða við að akstur gæti orðið 450 - 500 km.

Miðað er við að bílar ferðarinnar séu fylltir. Ferðakostnaður skiptist síðan jafnt milli þátttakenda fyrir utan bílstjóra sem leggja til sinn bíl.

DAGSKRÁ FERÐARINNAR VERÐUR ÞESSI:

Föstudagur 27. ágúst

Mæting á Bensínstöð Olís við Suðurlandsveg 18:45 brottför þaðan 19:00

Laugardagur 28. Ágúst.

Að loknum morgunverði og frágangi um 8:30 verður haldið í Landmannalaugar með tiheyrandi ljósmyndastoppum, áætlað er að vera komin í gististað ekki seinna en um kl: 18:00 og hefst þá undirbúningur sameiginlegs kvöldverðar.

Sunnudagur 29. Ágúst.

Að loknum morgunverði og frágangi um kl: 09:30 verður haldið heim á leið með tilheyrandi ljósmyndastoppum. T.D. Háifoss, Gjánni, Stöng og Laxárgljúfrum eflaust koma ýmsir aðrir staðir til greina. Áætlað er að ferðinni ljúki svo þar sem hún hófst um kl: 18:00.

Skráning er hjá Heiðu til miðnættis 25. Ágúst. Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Vinsamlegast látið vita við skráningu hvort þið getið verið á Jeppa, hvort þið getið komið með grill. Og hvort þið viljið eins eða tveggja manna herbergi.

Skráningargjald við skráningu 4.500 kr fyrir tveggja manna herbergi, 6.700 kr fyrir einn. Leggist inn á Reikning: 319-26-6579 Kennitala: 230568-5619

Munið eftir að senda staðfestingu á greiðslunni á netang Heiðu: Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Vinsamlegast athugið að fólk er á eigin ábyrð í ferðinni.

Kveðja Ferðanefnd.

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík