|
Ferðaáætlun ferðanefndar Fókus 1. ágúst til 31. desember 2010
Ágúst.
7. ágúst laugardagur, ljósmyndarölt. Gay Pride - Gleðigangan
Áætlaðri ljósmyndaferð 7. ágúst hefur verið breytt.Í staðinn fyrir að fara í Straum og Hvassahraun þá ætlum við að ljósmynda Gleðigönguna sem kölluð er réttu nafni Gay Pride.
Hittumst á Hlemmi kl. 11.00 þó að gangan hefjist ekki fyrr en kl. 14.00.
Þannig gefst okkur gott tækifæri að ljósmynda undirbúninginn og leggja plön varðandi myndatökur í göngunni.
Sú breyting er þetta árið að gangan byrjar núna frá Snorrabrautinni en ekki við Hlemm eins og fyrri ár.
Mætum sem flest. Þarna gefst frábært tækifæri að ljósmynda fólk í öllum regnbogans litum og áhorfendur.
27.- 29. ágúst. Síðsumars og haustferð.
Farið verður í Landmannalaugar, gisting verður að öllu óbreyttu í Hálendismiðstöðinni við Hrauneyjar.
September.
11. september laugardagur dagsferð. Hraunfossar og Húsafell.
Mæting við Select við Vesturlandsveg kl 08:30 brotttför kl 08:45
25. september laugardagur, myndarölt. Vatnsmýrin, Tjörnin og Miðbærinn.
Mæting við Norræna húsið kl 12:45 farið þaðann kl 13:00.
Október.
9. október laugardagur dagsferð. Reykjanes, Garður, Sandgerði, Hvalsnes og víðar.
Mæting við N1 við Reykjanesbraut í Hafnarfirði. kl 08:30 brottför þaðann kl 08:45
23. október laugardagur, myndarölt. Álafoss, og svæðið í nágrenni Reykjalundar.
Mæting við Álafoss kl 12:45 lagt af stað í röltið kl 13:00.
Nóvember.
6. nóvember laugardagur, dagsferð. Hvalfjörður.
Mæting við Select við Vesturlandsveg kl 08:30 brottför þaðann kl 08:45.
27. nóvember laugardagur, myndarölt. Fossvogskirkjugarður.
Mæting við Fossvogskirkjugarð kl 12:45 lagt af stað í röltið kl 13:00.
Desember.
11. desember laugardagur, jólarölt. Kirkjugarðurinn við Suðurgötu.
Mæting við Hólatorg kl. 12:45 lagt af stað í röltið 13.00
Þessi Dagskrá Ferðanefndar er með fyrirvara um breytingar sem getað orðið af ófyrirsjánlegum orsökum, hvað varðar Síðsumars og Haustferð verður hún kynnt sérstaklega í byrjun ágúst.
Með kveðju og óskum um gott myndasumar.
Ferðanefnd Fókus.
Aðalheiður Einarsdóttir. Heiða.
Varðandi helgarferðina í Landmannalaugar þá erum við búin að tryggja okkur pláss í Hálendimistöðinni með gistingu og skráning verður síðan eins og áður á netfangi Aðalheiðar. Nánari upplýsingar berast eftir Verslunarmannahelgi. |